19. júní - 01.10.1994, Side 26
Samakonur voru áberandi á Nordiskt Forum.
íslenskar verkalýðskonur létu að sér kveða með efiirminnilegum
leikatriðum í Ábo í Finnlandi.
Sl. sumar hófit raktunarstarf á ný í
gróðurreit KRFÍ í Heiðmörk. Á þess-
ari mynd réttir Sólveig Jónsdóttir,
stjórnarkona í félaginu, úr hryggnum
eftir að hafa lagt gjörva hönd á plóg-
inn. Á myndinni til hœgri brosir
framkvœmdastjór KRFÍ, Edda Hrönn
Steingrímsdóttir, í myndavélina.
Hansína B. Einarsdóttir, afbrotajrœðingur og
stjómarkona í KRFÍ, flutti athyglisvert erindi
á Nordiskt Forum um konur og stjómun, en
Hansína hefur haldið jjölmörg námskeið um
atvinnuþátttöku kvenna og nýsköpun.
Fréttir úr
starfi KRFÍ
Um 40 konur sóttu kvennaráð-
stefnuna Nordisk Forum á
vegum KRFÍ sem haldin var í
Turku í Finnlandi dagana
1—6. ágúst. Félagið var með
kynningarbás þar sem veittar voru allar
helstu upplýsingar og þar var einnig hægt
að nálgast blað KRFÍ, 19. júní sem komið
hefur út nú þrisvar sinnum á ári undan-
farin tvö ár, en var áður ársrit. Þar var
einnig kynnt bókin „Veröld sem ég vil“ —
saga Kvenréttindafélags íslands 1907-1992
en höfundur hennar er Sigríður Th. Er-
lendsdóttir. Hansína B. Einarsdóttir af-
brotafræðingur flutti erindi á vegum KRFÍ
sem bar yfirskriftina „Undir stjórn kvenna“
en þar fjallaði hún um konur sem stjórn-
endur og helstu hindranir sem þær þurfa
ða yfirstíga. Aður en farið var til Finnlands
höfðu nokkrar félagskonur þó gefið sér
tíma til að fara í gróðursetningarferðir í
Heiðmörk og reynt að græða upp þann
skika sem félagið á þar.
Vetrarstarið er að hefjast. Fyrsti opni
umræðufundurinn var haldinn þann 16.
nóvember og bar hann yfirskriftina „Allt í
plati - eða hvað?“ og fjallaði um áhrif of-
beldis í fjölmiðlum og tölvuleikjum á börn
og unglinga. Fundarstjóri var Þórhildur
Líndal og umræðustjóri Hansína B. Ein-
arsdóttir. Síðar í vetur verða tveir opnir
umræðufundir til viðbótar, um ábyrgð
feðra í uppeldinu og um heilsufar kvenna.
Ekki má gleyma jólafundinum sem hald-
inn verður að Hallveigarstöðum þann 7.
desember en hann er orðinn að föstum lið
í starfi félagsins.
Mannréttindaskrifstofa íslnds var stofn-
uð formlega á sérstökum hátíðarfúndi á
Þingvöllum þann 17. júní sl. Kvenréttinda-
félag ísiands er eitt af 9 stofnaðilum. For-
maður var kjörinn Ragnar Aðalsteinsson
en auk hans eru í framkvæmdastjórn Inga
Jóna Þórðardóttir og Jóhanna K. Eyjólfs-
dóttir. Ágúst Þór Árnason er framkvæmda-
stjóri skrifstofúnnar en aðsetur hennar
verður að Laugavegi 31.
Ráðstefna Sameinuðu
þjóðanna í Peking 1995
Fjórða ráðstefna Sameinuðu þjóðanna til
að vega og meta stöðu kvenna í heiminum
verður haldin í Peking í Kína dagana 4.-5.
september 1995. Undirbúningur ráðstefn-
unnar hér á landi er í höndum utanríkis-
ráðuneytisins og sérstakrar nefndar sem
skipuð er fulltrúum stjórnvalda og ýmissa
kvenna- og félagasamtaka. Formaður und-
irbúningsnefndar er Sigríður Lillý Baldurs-
dóttir.
Jafnframt verður efnt til kvennaþings í
Peking á vegum kvennasamtaka um allan
heim s.k. NGO Forum (non governmental
organisations) og er búist við þátttöku um
25.000 manns. Kvennasamtök hér á landi
hafa haft litla möguleika á að taka þátt í
NGOs Forum sem fram að þessu hafa ver-
ið haldin í tengslum við opinbera ráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna um málefni
kvenna en á ráðstefnunni í Turku í sumar
kom fram greinilegur áhugi á henni og
konur á hinum Norðurlöndunum vinna
nú af fullum krafti að þeim undirbúningi.
Framkvæmdastjóri NGOs Forum, Irene
Sandago, verður á ferð um Norðurlöndin í
byrjun næsta árs og munu kvenréttinda-
félögin skipuleggja ferðalag hennar. Gert er
ráð fyrir^ að hún verði á íslandi dagana
7.-9. febrúar og mun KRFÍ skrifa á næst-
unni til kvennasamtaka hér á landi og
greina nánar frá þeim undirbúningi.
26