Fréttablaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 6. desember 2010 15 Nú er rétti tíminn til að kaupa sér notaðan bílaleigubíl Notaðir bílar · Kletthálsi og Laugavegi 174 · Umboðsmenn um land allt · www.hekla.is · Sími: 590-5040 · Opið virka daga 10–18. ÞETTA ER AÐEINS BROT AF ÚRVALINU HJÁ HEKLU Opel Corsa Tilboðsverð aðeins: 990.000 kr. Hyundai Santa Fe Tilboðsverð aðeins: 2.890.000 kr. 360.000 KR. AFSLÁTTUR 260.000 KR. AFSLÁTTUR 640.000 KR. AFSLÁTTUR 390.000 KR. AFSLÁTTUR 500.000 KR. AFSLÁTTUR 300.000 KR. AFSLÁTTUR F í t o n / S Í A Ásett 1.290.000 kr. – Bensín. Ekinn 97.000 km. Skráningardagur 26.06.08. Beinskiptur. Ásett 3.390.000 kr. – Dísil. Ekinn 102.000 km. Skráningardagur 13.06.08. Sjálfskiptur 4X4. Nissan X-trail Tilboðsverð aðeins: 2.290.000 kr. Ásett 2.680.000 kr. – Bensín. Ekinn 89.000 km. Skráningardagur 13.06.08. Sjálfskiptur 4X4. Nissan Pathfinder Tilboðsverð aðeins: 3.950.000 kr. Nissan Micra Tilboðsverð aðeins: 990.000 kr. Ásett 4.590.000 kr. – Bensín. Ekinn 86.000 km. Skráningardagur 12.06.08. Beinskiptur 4X4. Ásett 1.250.000 kr. – Bensín. Ekinn 93.000 km. Skráningardagur 13.06.08. Beinskiptur. Subaru Impreza Tilboðsverð aðeins: 1.490.000 kr. Ásett 1.850.000 kr. – Bensín. Ekinn 84.000 km. Skráningardagur 03.07.08. Beinskiptur. Þegar maður hefur þennan ósið að kveikja alltaf á frétt- unum í útvarpinu og lesa blöðin og annan vettvang þjóðfélags- umræðunnar líður manni stund- um eins og maður sé „barns- höfuð í forvitnisferð um glæpi stundanna“ eins og Þorsteinn frá Hamri orti. Manni líður eins og barni á rifrildisheimili. Maður fyllist magnleysi þess sem býr við stöðuga gagnkvæma heift þeirra fullorðnu. Maður veit ósköp lítið um þetta, þetta snert- ir mann bara óbeint – maður skil- ur þetta ekki alveg – en rifrildið er engu að síður orðið stór þáttur í lífi manns. Einn segir – annar segir Þetta er snúið … Einn segir að það hafi orðið for- sendubrestur og að þar með sé eðlilegast að fram fari flatur niðurskurður á skuldum lands- manna – klukkunni svo að segja snúið aftur á bak þangað til fyrir hrun. Nógir séu peningarn- ir í bönkunum – sem grætt hafi ómælt á þessum forsendubresti – og náttúrulega lífeyrissjóðunum. Peningarnir safnist upp, nýtist engum; fólk jafnt sem fyrirtæki svo skuldum vafin að lánstraust sé ekkert og engin dáð í neinum og því sé atvinnulífinu og heim- ilunum í landinu smám saman að blæða út. Annar segir að ekki sé hægt að láta eins og hrunið hafi ekki átt sér stað. Forsendubresturinn sé vissulega til staðar en ekki sé hægt að þurrka hann út með ósk- hyggjunni einni. Þjóðin í heild hafi lifað um efni fram á bólu- peningum sem ekki voru til. Og ekki sé það þjóðinni í heild í hag að bankarnir fari aftur á haus- inn eins og hljóti að gerast með of stórfelldri skuldaniðurfellingu eða lífeyrissjóðirnir tæmist í ein- hverja ótilgreinda skuldahít. Á móti er sagt að sanngjarnt sé að allir komi að því að bera þær byrðar af forsendubrestinum hljótast – ekki bara þeir sem voru svo óheppnir að taka lán á vond- um tíma. Þá er sagt að þeir sem keyptu sér húsnæði og bíla á fölskum forsendum (gengislánin) séu bara óráðsíufólk sem verði sjálft að taka ábyrgð á sínum ákvörðunum og hefði mátt vita að maður getur ekki bara tekið lán á því gengi sem manni sýnist eins og fólk var svo fávíst að halda – maður eigi ekki að kaupa sér risabíl og risa- skjá eða reisa sér fjögur hundr- uð fermetra einbýlishús nema maður sé auðkýfingur. Því er svarað með því að vart hafi staðið önnur lán til boða á þessum tíma en gengistryggð lán og auk þess hafi mikil hvatning verið í samfélaginu til að festa kaup á stórum bílum (sem stjórn- völd skattlögðu minna en fólks- bíla) og ýmsum varningi til heim- ilisins, til dæmis flatskjám. Og því megi heldur ekki gleyma að fólk hafi upp til hópa gert sínar greiðsluáætlanir, og jafnvel var- færnislegar, og að í þeim áætlun- um hafi verið mikið svigrúm til hækkana á lánum, en ekki hafi hins vegar hvarflað að neinum að bankarnir væru komnir út á slíkt hengiflug sem raun bar vitni. Einnig verði að hafa hér í huga að fólk tók á sig skuldbinding- ar í húsnæðismálum í þeirri trú að það ætti auðvelt með að selja góða eign á góðu verði en hrun- ið svo gert það að engu svo að nú þurfi margir að greiða af tveimur eignum í einu. Á móti er dregið ögn í land, og talað um að jú jú, auðvitað eigi að hjálpa fólki sem lent hafi slík- um greiðsluvandræðum án þess að hafa sýnt af sér annað fyrir- hyggjuleysi en að trúa þjónustu- fulltrúanum sínum, en sértækar lausnir hljóti að henta slíku fólki, frekar en ein allsherjar niður- felling sem kannski bara gagnist þeim allra gálausustu eða þeim allra ríkustu. Því er svarað með því að benda á að bönkunum sé ekki treystandi í þeim efnum og það bjóði upp á geðþóttaréttlæti. Þeir pikki út sína þóknanlegu og felli niður skuldir hjá þeim: og svo eru til- greindir hinir og þessir útrásar- kónar, Stímkallar og kvótagos- ar með allt niðrum sig sem engu að síður hafi fengið stórfelldar afskriftir á ævintýralegum upp- hæðum og geti nú byrjað upp á nýtt að leggja drög að næsta hruni efnahagslífsins. Þá er bent á að samningur sé samningur, skuld sé skuld; orð skulu standa, það sem maður skrifar undir er skuldbinding. Og spurt: Hvernig yrði eiginlega þjóðfélagið ef það væri matsat- riði skuldarans hverju sinni hvort og hvernig hann eigi að borga? Geta menn bara sagt að þeir telji að hér hafi orðið forsendubrestur og ætli ekkert að halda áfram að borga þennan skáp sem keyptur var á visa-rað í febrúar síðast- liðnum? Hvernig endar það? Fyr- irtækin sem ennþá hjara í land- inu ganga út á að selja fólki föt og bíla, bækur, byggingarvörur, hús- gögn og rafmagnsvörur, og þurfa náttúrulega að geta reitt sig á að fá greitt fyrir það sem þau selja enda margvíslegur kostnaður sem liggur að baki; Það séu með öðrum orðum ekki bara skuldar- ar sem hefðu hagsmuni að verja í þessu landi … Þegar ég vaknaði á sunnu- dagsmorguninn glumdi í haus- num á mér lagið Give Peace a Change. Við þokumst ekkert með þessu eilífa orðastríði. Við bara tölum okkur upp að knjám. Allir verða að gefa eftir, við verðum að klára þessi mál; snúa okkur að öðru – semja, eða eins og það er svo fallega orðað á íslensku: semja frið. „Allir eru að tala um …“ Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Við þokumst ekkert með þessu eilífa orðastríði. Við bara tölum okkur upp að knjám. AF NETINU Matur í poka handa öllum En mér finnst ástæða til að ítreka að aðferðafræðin sem virðist vera notuð hjá Fjölskylduhjálpinni (og hugsanlega fleirum) er ekki góð. Engar tilraunir virðast gerðar til að kanna raunverulega þörf þeirra sem leita sér eftir mat. Ég hef tekið þátt í matvæladreifingu til hrakins fólks víða um heiminn og þá er grundvallarspurningin ævinlega hin sama: hverjir þurfa raunverulega á því að halda og hvernig er best að velja þá úr öllum hópnum sem leitar eftir matargjöfum? Oft er mikill munur þar á, jafnvel margfaldur. Eins og þetta kerfi er hér gæti ég þess vegna farið í biðröðina og fengið mat í poka þótt ég geti keypt hann sjálfur. umbiroy.blog.is Ómar Valdimarsson Stolt þjóðarinnar laskað Mér sýnist að allstór hluti milli- stéttarinnar hafi það þrátt fyrir allt sæmilega gott. Ég hef á þessu ári starfa minna vegna orðið að aka mjög oft austur fyrir fjall og flesta daga vikurnnar er bíll við bíl seinni partinn frá Selfossi til Reykjavíkur. Fullt af fólki heldur áfram að fara í sumarbústaðina sína og aldrei hefur verið meiri aðsókn á dýra jólatónleika. Jólahlaðborðin hafa sennilega aldrei verið fleiri. En stolt þjóðarinnar, hin fjöl- menna millistétt, er stórlega lask- að og biðraðirnar hjá hjálparstofn- unum þjóðarskömm ofan á alla skömmina sem við höfum haft af Hruninu og aðdraganda þess. omarragnarsson.blog.is Ómar Ragnarsson

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.