Fréttablaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 21
FASTEIGNIR.IS 6. DESEMBER 201049. TBL. Fasteignamarkaðurinn er með til sölu endarað- hús við Lindasmára 65 í Kópavogi. F asteignin er 173 fermetra endaraðhús á tveim-ur hæðum, stendur innst í botnlanga og við opið svæði. Hún er skipulögð með eftirfarandi hætti. Komið er inn í flísalagða forstofu með fata- hengi. Inn af henni er flísalagt þvottaherbergi með glugga og innréttingum. Hol er flísalagt. Gestasal- erni er við hol, flísalagt gólf og veggir. Eldhús er flísalagt, með innréttingum úr kirsuberjaviði með tengi fyrir uppþvottavél og góðri borðaðstöðu. Sam- liggjandi parketlagðar, bjartar og rúmgóðar stofur með flísalögðum sólskála til suðurs. Úr sólskála er útgangur á stóra viðarverönd til suðurs með skjól- veggjum. Stórt parketlagt herbergi sem hægt er að opna við stofur. Innfelld lýsing er í loftum neðri hæðar. Á efri hæð hússins er gengið um steyptan, parket- lagðan stiga. Komið er í parketlagt sjónvarpshol. Tvö rúmgóð parketlögð barnaherbergi. Baðherbergi er með glugga og innréttingum, granítlagt gólf og flísa- lagðir veggir. Bæði er baðkar og flísalagður sturtu- klefi í baðherbergi auk handklæðaofns. Hjónaherbergi er rúmgott, parketlagt og með fataherbergi inn af. Bílskúrinn er með hita og rafmagni. Vel staðsett endaraðhús Húsið að utan er í góðu ástandi. Lóð er fullfrágengin með hellulagðri inn- keyrslu og stéttum framan við húsið með hitalögnum undir. heimili@heimili.is Sími 530 6500 Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.