Sameiningin - 01.03.1891, Blaðsíða 6
___2__
ganga heilir 2 langir kapítular eða hátt á annan kapítula
til þess að segja frá hans píslar- og dauðasögu. Og þegar
maðr man eftir þvi, að hin stytzta af þessum æfisögum er
að eins 16 kapítular, af þeirri lengd, sem allir þeir þekkja
vel, sem ofr-lítið er kunnug sín biblía, og hin lengsta ekki
nema 28 kapítulai', þá verðr auðsætt, að það er undarlega
mikið pláz í þessum æfisögum, sem píslarsagan tekr upp,
í samanburði við allt annað. j)að má sannarlega segja, að
þessar æfisögur Jesú eftir guðspjallamennina, -— og engar
aðrar æfisögur hans eru, eins og menn vita, til frá forn-
öldinni, — sé í meira lagi undarlegar. þær eru svo und-
arlegar, að þær eru alveg frábrugðnar æfisögum allra ann-
arra manna, sem nokkurn tima hafa verið fœrðar í letr.
það er auðséð á öllu í þessum æfisögum, að það er alveg
einstakleg persóna, sem þeir eru að segja frá. þessi per-
sóna, Jesús frá Nazaret, lifði ekki nema rúm 33 ár ájörð-
inni. Og í þessum guðspjalla-æfisöguin hans er alls ekkert
atriði í æfi hans tekið til frásagnar þangað til eftir að
hann var orðinn fullra 30 ára, að undanteknum nokkrum
sögubrotum, er snerta fœðing hans og ýmislegt, er fram
kom við lmnn meðan hann var ómálga barn, og einu
einasta atviki úr œsku-æfi hans, þegar þau Jósef og María
fóru með hann 12 ára gamlan til Jerúsalem. Að þessu
undanskildu, sem þó er ekki snert minnsta ögn við í æfi-
sögum tveggja guðspjallamannanna, þeirra Markúsar og Jó-
hannesar, ganga allar æfisögurnar út á það, sem gjörðist
á æfi Jesú þann tiltölulega stutta tíma af lífstíð hans,
sem hann átti eftir óiifaðan, þegar hann var orðinn þrí-
tugr að aldri. Svo það eru að eins rúm 3 ár, og það hin
seinustu á æfi Jesú, sem guðspjallamennirnir taka til frá-
sagna í þessum sínum ætísögum. Hitt allt í æfi Jesú hverfr
svo að segja algjörlega hjá þeim. En svo kemr annað enn
þá einkennilegra til skoðunar í þessum æfisögum. Píslar-
og dauðasagan Jesú tekr svo undarlega mikið pláz upp í
öllum þessurn söguritum. Höfundarnir segja þar svo undr
nákvæmlega frá hverju einasta sináatriði. þar verör varla
séð, að nokkru sé sleppt. í þeim æfi-atriðum hans er allt
í augum þeirra svo makalaust stórt og merkilogt. það er
I