Sameiningin - 01.03.1891, Blaðsíða 10
—6—
or5i5 andleg fœ5a fyrir þetta sama fólk. Og ]m5 er ein-
mitt þetta, sem guöspjallamennirnir og allt nýja testamentið
og allir Messíasar-spádómar gamla testamentisins sýna að
Jesús Kristr átti að gjöra og gjörði, svo sem aðalatriðið í
hans æfistarfi. það er þetta, sem Jesús er að gjöra, þegar
hann gengr í gegnum sina píslarsögu og út í dauðann á
föstudaginn langa. Og allt, sem þar á undan er gengið í
hinni opinberu æfisögu Jesú, er í rauninni ekki annað en
undirbúningrinn til hins mikla frelsisverks, sem þá — í
og með píslarsögunni — var af honum unnið. Nú fer
maðr að skilja í nafni og þýðing föstudagsins langa. Nú
fer það að renna upp fyrir manni, hvað höfundarnir að
æfisögu Jesú vilja með þessari ákaflega löngu og nákvæmu
dauðasögu hans. Nú kemr það greinilega í ljós, hvers
vegna þessi eini sólarhringr í hinni helgu sögu tekr svo
margfalt meira pláz upp í biblíunni heldr en mörg ár,
meira jafnvel heldr en margir mannsaldrar eða heilar
aldir í liinni ákaflega löngu helgisögu guðlegrar opinberunar.
Hefði kristin kirkja ekki skilið rétt, er hún samkvæmt
hinum helgu ritningum vorum gjörði píslarsöguna og kross-
dauða Krists að aðalatriði í sinni kenning, og hélt trúnni
á hann líðanda og deyjanda sem undirstöðu fyrir líf krist-
inna inanna á öllum tímum, þá hefði hún sannarlega þurft
að hafa aðra . biblíu út frá að ganga í sinni kenning en
þa, sem vér nú höfum. Píslarsagan hefði ekki mátt vera
til í þeirri biblíu, og ekki heldr neitt það annars staðar í
biblíunni, sem annaðhvort bendir til fórnardauða frelsarans
eða gengr út frá honum sem þegar fram komnum, eins og
allt nýja testamentiö í einni heiid gjörir. Takið nú rít
úr heilagri ritniug vorri allt það, sem beinlínis eða óbein-
línis snertir söguna, sem föstudagrinn langi heldr á lofti.
Og vitið svo, hvað mikið eiginlega verðr eftir af
biblíunni. Allt þetta, sem þá verðr eftir, það er nú TJní-
tara-lriblían. það er biblían allra þeirra, sem ekki þykjast
þurfa á neinum endrlausnara að halda, og sein, af því þeir
ekki finna neina þörf á endrlausnara, setja Jesúm Krist í
röð með sjálfum sér, eða öllu heldr reyna til að gjöra út
af við hann sem endrlausnara. Eg vil, að allir þeir meðal