Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1891, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.03.1891, Blaðsíða 12
látna, þar sem hann sjálfr haföi ætlaö að láta leggja sig, ]>egar hann væri látinn. Getr nú ekki hin veika trúin yðar, þér, sem hingað til hafið verið líkt skapi farnir og þeir Jósef frá Aremaþía og Nikodemus, farið að áræða að koma opinberlega fram, þegar þér á sjálfan dauðadaginn Jesú iiugsið um það, að nú loks er komið svo langt meðal Islendinga, að opin- berlega er farið farið að veita Jesú sem endrlausnara bana- tilræði, — að nú er opinber tiiraun sett í gang, til þess að gjöra út af við kristnu trúna hjá vorum þióðflokki hér um slóðir? Sú frétt flýgr nú um allt, að heill hópr Is- lendinga hér sé hlynntr þeirri vantrúar-tegund, sem kaliar sig Unítara-trú, sé með öðrum orðum hlynntr því, að gjört sé hið satna viö Jesúm Krist eins og Gyðingar gjörðu við hann til forna, að svo miklu leyti sent slíkt er nú unnt að gjöra. — Hver er vor framtíðarvon sem þjóðflokks, ef frelsari vor er deyddr í almennings-meðvitundinni? Hver er þín framtíðarvon, maðr, í dauðanum, ef þú áðr ert bú- inn að láta gjöra út af við trúna á hann, sem leið og dó fyrir þínar og allrar veraldarinnar sytidir? Eg vil, að vér á föstudaginn langa hugsum um dauð- ann, Jesú dauða og vorn dauða og dauða allra, sem vér höfutn elskað og elskum. Ekki dugir neinn siðalærdómr í dauðanum, og allra sízt siðalærdómr vantrúarmannanna. þá þurfum vér allir á trú að halda, og það einmitt trú á Jesúm dáinn fyrir vorar og allra manna syndir. — Getr nú ekki veika trúin, hin veika ásfc á Jesú Kristi, logað upp úr eins og hjá þeim Jósef og Nikodemusi? LÖGMÁLSVEGRINN OG NÁÐARVEGRINX. Sdlmr, sendr ,,Sam.“ frá Islandi af Bjarna Jónssyni. Ó, hvernig á eg, herra, svo að breyta í heimi, að mér veitist eilíffc líf? þess spyr eg oft og sífellt svars þíns leita. Mér svarar þú, minn lausnari, mín hlíf:

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.