Sameiningin - 01.03.1891, Side 16
—12—
veriS nálega þeir einu, sem siglt hafa og fengiS á sig nokk-
urt snið, búið til handa sér „fín“ embætti og látið þjóðina
gegn um þau líta upp til sín eins og sauða af öðru húsi
en hún sjálf. Svo hefir á síðari tímum enginn verið talinn
maðr með mönnum nema hann hefði siglt til Kaupmanna-
hafnar og framast þar, með því einkum og sér í lagi að
lesa lögfrœði. Allir beztu kraftarnir meðal stúdentanna hafa
lent í þessa áttina. Sízt af öllu hafa Islendingar þar lesið
guðfrœði. því bæði er það, að materialismus 19. aldarinn-
ar er kominn upp til Islands, og svo hafa lögfrœðingarnir
búið svo um hnútana, að prestaköllin íslenzku geta ekki,
að því er til embættislaunanna kemr, orðið neinum hvöt
til þess að leggja fyrir sig guðfrœðisnám. Nálega undan-
tekningarlaust allir námsmenn vorir ganga sinn skólaveg
af þeirri aðalhvöt, að ná fyrir hann í embætti, „brauð".
Og svo er gangrinn þessi: Stúdentarnir frá latínuskólanum
með lakasta vitnisburði eru dœmdir til að fara á presta-
skólann eða læknaskólann, því þeir geta engan styrk feng-
ið við háskólann í Höfn. Nú er hvötin meiii til að fara
á prestaskólann en læknaskólann, af því að „brauðin“ eru
fleiri en læknaembættin, og svo er próf þar léttara, náms-
tími styttri og meiri opinber fjárstyrkr. þeir, sem gott
próf fá frá latínuskólanurn, eða þeir, sem teljast mega veru-
lega efnilegir, fara því að eins á prestaskólann íslenzka,
að þeir annaðhvort vilji sem fyrst verða prestar, sem nú
er mjög sjaldgæft, eða þeir hafi ekki peningaráð til að
sigla til háskólans. Afieiöingin af öllu þessu er, að inn í
hóp þeirra, er vera eiga leiðtogar þjóðarinnar í andlegu til-
liti, prestanna, lenda tiltölulega lang-flestir þeirra, er litlum
hœfilegleikum cru búnir, en lang-fæstir í lögfrœðinga-hópinn ;
og þá er engin furða, þó að veslings íslenzka kirkjan eigi
örðugt meö að sýna mikil afreksverk eða yfir höfuð að
tala að halda áliti sínu í augum almennings. Lögfrœðing-
arnir íslenzku eru enn ekki nema 24, en prestar yfir 160.
Og þó eru vafalaust fleiri veruiegir hœfilegleikamenn meðal
lögfrœðingannx en prestanna. Svo lögfrœðingastefnan og
-lífsskoöanin verðr ofan á til stórtjóns fyrir land og lýð.—
J)ess vegna segi eg hiklaust mcð „Sam.“: Burt með öll hin