Sameiningin - 01.03.1891, Side 17
táldrœgu hlunnindi Islendinga við Kaupmannahafnarháskóla..
Landið má ekki lengr láta sína efnilegustu náinsmenn
streyma þangað svona í vitleysu.
--——--- -------------
Innan Jútersku kirkjunnar hér í Ameríku eru sem
stendr 144 trúarmálatímarit gefin út, nefnilega á þýzku 54,
á ensku 49, á sœnsku 17, á norsku 14, á dönsku 4, á
fínnlenzku 3, á frakknesku 2, á íslenzku 1.
Lúterskir prestaskólar eru 22, college-skólar 26, kvenna-
skólar 10, akademí 41, heimili fyrir munaðarleysingja og
bágstadda, spítalar, missíónshús fyrir innflyténdr, o. s. frv., 59.
Innan 1 útersku kirkjunnar í Ameríku eru 4 sambands-
deildir: General-sýnódan, Sambands-sýnóda suðrríkj-
anna, General-Kánsil (council) og Sýnódal-Konferenz-
an. Af þeim er hin fyrst nefnda elzt, hin síðast nefnda
fjölrnennust og aðallega þýzku-talandi. Hver fyrir sig af
þessum kirkjudeildum saman stendr af fleiri eða færri sýn-
ódum. General-Kánsil sleit sig frá General-sýnódunni 1865,
og er nú orðið nærri því helmingi fjölmennara en hún.
Sá aðskilnaðr var sprottinn af því, að lúterskan var nærri
horfin hjá meira hlnta kenniinanna og safnaða í því kirkju-
félagi, þeir búnir að hleypa inn í sig reglulegum Meþodista-
anda, svo að þeir, sem al-lúterskír voru í anda, sáu sig
neydda til, að mynda kirkjufélag út af fyrir sig. Siðan
General-Kánsil myndaðist hefir mikill hluti General-sýnód-
unnar sjálfrar aðhyllzt hreinni lútersku en áðr og er nú
í anda eitt með General-Kánsil. Litr út fyrir af þeirri
mismunandi trúarstefnu í General-sýnódunni, að það félag
slitni enn í sundr. En verði það, þá verðr það í þetta
skifti hinn ólúterski hlutinn, sem slítr sig frá, með því að
hann er nú minni en sá, sem heldr sér trúlega við hin
lútersku játningarrit. — Hin sœnsk-lúterska Augustana-
sýnóda heyrir General-Kánsil til. — í Sýnódal-Konferenz-
unni er hin þýzka Missouri-sýnóda sú kirkjudeildin, sem
mest gætir í því volduga félagi.
Auk þessara 4 sambandsdeilda lútersku kirkjunnar eru
margar lúterskar sýnódur hér í landinu, sem standa þeim
öllum óháðar, eru alveg út af fyrir sig (independent syn-