Sameiningin - 01.09.1891, Page 2
—98—
hafa fengið hér í Ameríku. þeir Jnirfa aS hafa fengið
ekki að eins hérlenda guöfrœSismenntan, heldr hka, og það
jafnvel cnn þá fremr, hérlenda almenna skólamenntan. Menn
segja, og. þaS með réttu, að allir, sem fullorSnir koma til
þessa lands úr hinum gömlu löndum norðráifunnar, þurfi
að yerða eins og nýir menn, læra upp á nýtt að vinna,
taka upp nýtt vinnulag í nálega hverju sem er, þegar
hingað er komið, svo framarlega sem þeir eigi hér að geta
komizt nokkuð áfram. Á þetta hafa allir íslendingar hér
rekið sig. þeir vita, að engum nýkomnum manni að heim-
an dugir að gjöra sig ánœgöan með, þótt hann geti með
sönnu sagt: „Kunna þótti eg norðr þar“. Kunnáttan, sem
þar gat dugað, dugir hér ekki. Hann verðr að breyta til,
taka upp nýja aðferð við vinnu sína, læra að beita nýju
lagi, sem hér á við. það kostar áreynslu og stríð þetta;
en það er óhjákvæmilegt, því sitji hinn aðkomni maðr við
sinn keip, þá liggr hann brátt undir í samkeppninni við
þá, sem kunna hérlend tölc á vinnu sinni, og verðr óhœfi-
legr fyrir lífið hér, hversu vel sem hann þótti duga í hin-
um upphaflegu átthögum sínum. En sé þetta satt, eins og
það vissulega er, þegar um almennan verknað er að rœöa,
þá er það eigi síðr satt, að því er kemr til andlegrar
vinnu. Skólamenntanin, sem fæst og fengizt getr heiina á
Islandi, getr, ef til vill, þegar bezt lætr, dugað fyrir lífs-
ástœður manna þar heima; en að hún geti líka dugað fyr-
ir lífsástœður manna í þessu landi, það stendr sannarlega
ekki til. Og eigi einn íslendingr, sem að eins hefir fengið
þá menntan, er veitzt getr á skólunum heima, að verða
verulega hœfr til félagslegrar andlegrar vinnu meðal landa
sinna hér, þá verðr hann í menntunarlegu tilliti að mörgu
leyti að umskapast og endrfœðast, eftir að hann er hingað
kominn. Hann verðr að losa sig við svo eða svo mikið
af því, er áðr komst inn í hann með hinni heima-fengnu
skólamenntan, og hann verðr að fá svo margt og mikiö
nýtt inn í sig, sem hann ekki dreymdi neitt um meðan
hann átti heima á íslandi. Og það, að láta menntan sína,
eftir að maðr er orðinn fullorðinn og tekinn hér til starfa,
breytast á þennan hátt, það kostar sannarlega meira en