Sameiningin - 01.09.1891, Side 4
—100—
íelags vors heldr en að eiga alls ekkert í bakhöndina og
fleyta kirkjufélagsstarfinu áfram, eins og verið hefir að
undanförnu, upp á algjörða óvissu. Óskanda er, að fleiri
ungir og efnilegir Islendingar vekist smásaman upp innan
safnaða vorra eða utan þeirra til þess að ganga sama
veginn. En þá fyrst getuin vér orðið vissir um það, að
sú ósk nær að rœtast, vissir um það, að tala slíkra skóla-
gangandi ungra manna af vorum þjóðflokki hér fari sí-
fjöigandi, þegar hinn fyrirhugaði íslenzki skóli kirkjufé-
lagsins hefir í einhverri mynd verið settr á stofn. — Að
eins eitt lítið akaclemi eða lægsta tegund af ameríkönsk-
um œðra skóla er það, sem fyrir kirkjufélaginu hefir vak-
að að bráðlega þyrfti og ætti að koma upp vor á meðal.
Slíkr skóli gjörir auðvitað enga að prestum. Reglulega
guðfrœðismenntan yrði prestaefni vor langa-lengi að fá á
lúterskum prestaskólum annarra sterkari þjóðflokka liér í-
landinu, þó að vér fengjum komið vorum fyrirhugaða litla
skóla í gang. Og svo lengi sem skólinn að eins væri
alcademi, þá yröi þeir ungu menn, sem þaðan útskrifuðust,
yfir höfuð ekki rakleiðis sendir þaðan inn á hina eigin-
legu guðfrœðisskóla, heldr yrði þeir fyrst að ganga í gegn-
um eitthvert college; þá fyrst, þegar college-náminu væri
lokið, væri þeir undir reglulegt prestaskólanám búnir. Hugs-
an kirkjufólagsins er auðvitað sú, að skóli þess, er byrja
skyldi sem fyrsti bekkr af akademii, fœrði sig smásaman
út, yxi smásaman upp á við, þangað til úr honum yrði
reglulegt coUege. En sú hugsan hlýtr að eiga ákaflega
langt í land, hvað þá heldr áframhaldið af þeirri hugsan,
að skólinn gæti orðið að eiginlegum prestaskóla. En þó
að langa-lengi gæti ekki orðið uin neitt slíkt að rœða í
sambandi við vorn skóla, þá ætti hann, og það strax á
fyrsta œsku-stigi sínu, að geta haft ómetanlega þýðing
fyrir prestaútvegur kirkjufélagsins. Eitt ofr-lítið íslenzkt
alcademi myndi, þegar það væri komið í gang, brátt verða
til þess, að leiða all-marga unglinga af þjóðflokki vorum
inn á œðri ameríkanska skóla, og meðal þeirra, er þannig
leiddist þangað, myndi þó æfinlega verða nokkrir, sem
ganga vildi slíkan menntaveg með þeim fasta ásetningi,