Sameiningin - 01.09.1891, Blaðsíða 3
—99—
litla andloga áreynslu. En þó að maðr standist þá áreynslu,
þá stendr samt æíinlega sá, sem farið hefir á mis við hér-
lendan skólagang, miklu verr hér að vígi en hinn, sem
frá upphafi hefir náS aS menntast hér. Meö sínurn hezta
vilja til þess að verða í menntunarlegu tilliti hér eins og
innlendr verðr hann æfinlega eins og annar útlendingr.
Hann nær aldrei fullkomlega því lagi, sem hér á við, við
hina andlegu vinnu sína. það getr verið, að hann hafi
opið auga fyrir öllu því, sem bezt er til í þjóðernislegri
eign síns eigin fólks, sjái það skýrara en hann nokkurn
tíma sá áðr en hann ílutti til þessa lands, meti það meira
en allr þorri menntuðu mannanna, sem heima sitja; en að
ávaxta það hér og gróörsetja það inn í hérlent þjóðlíf, til
þess dugir hann aldrei neitt líkt því eins vel eins og hann
hefði gjört, hefði hann fengið reglulega ameríkanska skóla-
menntan.
það leggr sig þannig sjálft, að þeir, sem í framtíðinni
eiga að verða andlegir leiðtogar fólks vors í þessu landi,
þurfa nauðsynlega að hafa fengið hérlenda skólamenntan.
Vér sáum þetta ekki eins skýrt fyrir fáeinum árum eins
og vér sjáum það nú. það, hvernig tilraunir vorar með
að fá hingað presta eða prestaefni heiman frá Islandi hafa
misheppnazt, hefir algjörlega opnað á oss augun í þessu
tilliti. Og með tilliti til næstu framtíðar liefir þá líka
verið búið svo um hnútana, að nokkrir ungir íslenzkir náms-
menn, sem til þess hafa fundið köllun, hafa í síðustu tíð
verið sendir á ameríkanskar menntastofnanir tilheyrandi
lútersku kirkjunni, í því skyni að þeir undirbyggi sig þar
til þess svo fljótt sem ástæður leyfa í nafni kirkjutelags
vors að taka að sér kennimannlegt starf meðal landa sinna
hér í álfunni. Einir sjö slíkir Islendingar munu, að því
er vér vitum bezt, í vetr komanda ganga á œðri lúterska
skóla í Bandaríkjum. það er að vísu undr lág tala, sér-
staklega þar sem engin vissa er fyrir, að kirkjufélaginu
bœtist neinn nýr guðfrœðislega menntaðr maðr úr annarri
átt á tímanum, sem líðr, þangað til ]?essir menn hafa lokið
skólanámi sínu. En það er þó inargfalt betra að eiga innan
fárra ára von á þessum mönnum til hinnar andlegu vinnu