Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1891, Síða 6

Sameiningin - 01.09.1891, Síða 6
—102— löngu í opinberri rœSu, er hann hélt hér í Winnipeg, og sem b'rot hefir verið prentað a£ í „Löghergi“ greinilega sýnt fram á, hve einskisverS þessi móthára gegn hinum fyrirhugaða skola er. Af þeim rúmlega 10 ungmennum, sem í fyrra gáfu sig fram til að nota kennslu þá, er boð- ið var að veita hér í kirkjufélagsins nafni, en sem fyrir sérstakar ástœður ekki gat komizt á, varð ekkert til þess að ganga á neinn skóla, þegar þessi kennsla brast, né heldr myndi neitt þeirra á nokkurn skóla hafa gengið, þó að kennsla j.’cssi hefði ekki verið framhoðin. Hefði skól- inn þá getað komizt á, þá hefði allir þessir unglingar þó fengið ofr-litla skólamenntan, í staðinn fyrir að þeir enp þá hafa alls ekki gengið á neinn skóla. Hún er svo barna- leg, þessi mótbára, gegn skólafyrirtœki kirkjufélagsins, að upp á hana er ekki orðum eyðanda. Hitt er þar á móti vert að taka fram, að slík íslenzk skólastofnan, þótt lítil og ófulllcomin hiyti að verða t fyrstu, myndi alveg vafa- laust verða til þess, eins og þegar hefir verið hér á drepið, að auka námfýsi œskulýðs vors og gefa öllum þeim drengj- um og stúlkum, er á þann skóla gengi, hvöt til þess að leita sér meiri inenntunar, meðal annars ýta undir mars-a unglinga af hinum íslenzka þjóðfiokki hér, til þess að læra svo mikið og þroskast svo mikið andlega, að þeir yrði hœfir til að gjörast kennendr við liina opinberu alþýðuskóla landsins. þaö er hörmulegt til þess að vita, hve mennta- stofnanir þessa lands hafa til þessa lítið verið notaðar af Islendingum, hart, nærri því óþolanda, að enn skuli ekki prófaðir íslenzkir kennarar vera til fyrir helminginn af alþýðuskólunum í hinum ýmsu íslendingabyggðum hér í landinu. Og það væri undarlegt, ef þetta ástand lagaðist ekki ofr-lítið við það, að kirkjufélagið kœmi hinu fyrir- hugaða akademíi á síofn. Og ef íslendingar eiga eitthvað það í þjóSlífsarfi sín- um, sem getr haft nokkra þýðing einnig hér í nýju og 1 ictra landi, — og því munu flestir, sem ekki eru alveg hættir að vera íslendingar, vilja halda fram, — þá skyldi maðr ætla, að eigi yrði hér mcð neinu eins vel að því hlynnt eins og með því að halda íslenzk-ameríkanskri skóla-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.