Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1896, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.10.1896, Blaðsíða 4
116— þann daginn, sem til þess er ætlaðr. Einn kapítulinn í æfisögu hvers manns er um hvíldnrstundir lífs hans. Og sí kapítuli segir oss betr en allir hinir, hver maðrinri er og hve hátt eða lágt andi hans stefnir. I. Nafnið sunnudagr er af heiðinglegum uppruua. í fornöld var sólin dýrkuð sem guð meðal heiðingjanna. Rómverjar helguðu sólguði sínurn einn daginn og kölluðu hann sólardag— sunnudag. Kristnir menn hirtu ekki um að raska þessu nafni. þeir heimfœrðu það upp á þann, sem er ijós heimsins og sól réttlætisins, — hann, sem reis upp frá dauðum á sunnudags- morgun. Sú stund og sá dagr varð þeirn upp frá því heilagr um fram aðrar stundir og aðra vikunnar daga. I fyrstu kristni komu menn saman á sunnudögum til að brjóta brauðið, neyta kvöldmáltíðarinnar, — og biðjast fyrir. þegar fyrsta sunnu- daginn eftir upprisuna eru líkindi til að lærisveinarnir hafi haldið heilagt, því þann dag finnum vér þá aftr inni fyrir luktum dyrum, þegar frelsarinn koin til þeirra og sannfoerði hinn efanda lærisvein sinn, Tómas, um veruleik upprisu sinnar (Jóh. 20, 26). Tíu dögum eftir himnaförina eru lærisveinarnir með einum huga til samans fyrsta dag vikunnar. Og á þeim degi uppfyllir Jesús fyrirheit sitt um að senda þeim lieilagan anda af himni. Arið 57 eítir Krists burð, 24 árum eftir kross- dauða frelsarans, þegar Páll postuli ritaði hið fyrra bréf sitt til Korinþuborgarmanna frá Efesus, segir hann: „Hvcr yðar leggi afsíðis heima hjá sér á fyrsta degi vikunnar og geymi í einum sjóð“ (1. Kor. 16, 2). Hanu er að biðja þá að skjóta saman gjöfum handa fátœkum Gyðingnm í Jerúsalem. Hvers vegna skyldi hann nefna til þess fyrsta dag vikunnar ? Að líkindum vegna þess, að fyrsti dagr vikunnar, sunnudagrinn, er þegar orðinn fastsettr guðsþjónustudagr safnaðarins í Korinþu- borg, og ætlast postulinn þá til, a,ð hver safnaðarlimr, sem eitt- hvað er fœr um að leggja af mörkum, komi með þann skerf til guðsþjónustunnar, sem liann hefir tekið til heima lijá sér, og leggi þá upphæð í san.eiginlegan sjóð; og verðr þá þessi kær- leiksfórn til þurfandi trúarbrœðra einn liluti guðsþjónustunnar sjálfrar.—í Postulanna gjörningum segir Lúkas svo frá: „En

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.