Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1896, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.10.1896, Blaðsíða 6
—118— þegar á annarri öld sjaum vér, a5 sunnudagrinn er haldinn heilagr hvervetna í kristninni. Lengi fram eftir, meðan kristnh- menn voru ofsdttir og þjáðir á allar lundir, var þeim auSvitaS ekki unnt aS halda sunnudaginn eins og þeir vildu ; þeim var eigi unnt aS láta hann vera hvíldardag í þeim skiln- ingi, er hann varS þaS seinna. En þegar áriS 321 leiddi Kon- stantín rnikli hann í lög í öllu rdmverska ríkinu og gjörSi hann það öldungis ekki eiugöngu af' tilhliðrunarsemi við kristna menn, heldr af því hann renndi grun í, hvílíka ömetanlega blessan myndi af slíkum helgidegi leiða fyrir borgara ríkisins í heild sinni. (Meira.) Enn uin Biblínljóðii). það för eins og viS var aS búast, aS BókmenntafélagiS sleppti frá sér BihlíuljóSum séra Valdemars Briem. Líklega hefði það þó ekki gjört það, ef ekki hefði áðr verið fengin vissa fyrir því, að IjóSin gæti samt orðið út gefin og þaS jafnvel fyr en þau myndi hafa getað komið út frá félaginu. Hr. Sigurðr Kristjánsson, h'nn framkvæmdarsami bókaútgefandi í Reykja- vík, bauðst til að gefa ljóSasafnið út meS sömu kjörum og Bók- menntafélagið um áriS hafði sarr.ið um viS höfundinn, en lofaði l>ví um leið, að flýta útgáfunni meir en við var aS búast af felaginu. Með samþykki frá stjórn Bókmenntafélagsins í Reykjavík þá séra. Valdemar þetta boð. Og þegar á öndverSu sumri þessu var byrjaS á prentan verksins. það á aS koma út í tveim pörtum, og verða Ijóðin út af gamla testamentinu í fyrra partinum, en nýja testamencis Ijóðin í síðara partinum. Fyrri partrinn kemr út í ár,og er prentan þeirra ljóða, ef til vill> þegar lokið. En seinni partrinn er væntanlegr á næsta ári. Aðr en þessi ráðstöfun var gjörð fyrir útkomu Biblíuljóðanna haf'ði hr. Sigurðr Kristjánsson tekizt á hendr aS gefa út IjóS þau, er séra Valdemar hefir orkt út af DavíSs sálmum,og verðr nú, eftir því, sem oss er ritaðfrá Islandi, það verk, látið bíða þangað til Biblíuljóðin eru út komin. Og er búizt við að DavíSs sálmarnir komi út á árinu 1898. Biblíuljóðin, sem svo eru kölluð, eru aSallega söguljóð, orkt út af úfvöldu söguefni bæði í

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.