Sameiningin - 01.10.1898, Blaðsíða 3
frú Lára Bjarnason, Magnús Pálsson og Ólafr S. þorgeírsson
fyrir bandalag Fyrsta lúterska safnaSar í Winnipeg; frú Pálina
Steinsson fyrir bandalag Argyle-safnaSa.
Ákveðið var, að prestar kirkjufélagsins allir skyldi hafa
sömu réttindi á fundinum eins og hinir kjörnu fulltrúar, og öll-
um öðrurn kirkjuþingsmönnum var veitt málfrelsi, svo og sendi-
manniuum frá General Cuuncii, Alfred Ramsey presti.
Eftir nokkrar undirbúningsrceður var svo látandi tilla£fa
borin upp til atkvæða og samþykkt:
„Vér, erindsrekar bandalaganna, sem hér erum saman
komnir, ásamt prestum kirkjufélagsins, erum hugmyndinni um
allsherjar bandalag innan kirkjufélagsins hlynntir, álítum nauð-
synlegt, að rœtt verði og samþykkt frumvarp til laga fyrir
slíkan félagsskap á þessu þingi, er síðan verði lagt fram fyrir
hvert bandalag til samþykktar á árinu, og, fái liugmyndin al-
mennt fylgi, þá verði slíkr almennr félagsskapr stofnaðr að ári
liðnu af þar til kjörnum erindsrekum frá bandalögunum.“
í nafni bandalagsnefuarinnar, sem kirkjuþingið í fyrra setti
(séra Jónas A. Sigurðsson, séra Jón J. Clemens og Runólfr Mar-
teinsson), kom fundarstjóri með frumvarp til grundvallarlaga
fyrir hið fyrirhugaða bandalag kirkjufélagsins. Og eftir að það
hafði lítið eitt verið rœtt, var þeim séra Jóni Bjarnasyni, séra
Friðrik J. Bergmann og Magnúsi Pálssyni falið að yftrlíta það,
laga það, þar sem þeim sýndist nauðsynlegt, og leggja síðan aftr
fyrir fundinn hið bráðasta.
þegar gengið var á fund eftir miðdegisverð höfðu þeir lokið
yfirskoðaninni og lögðu skjalið fram svo liljóðanda:
FBUMVAEP TIL LAtíA 1’VBIK BANBALAtí KIKlvJUI’ÚLAtíSINS.
I. Nafn félagnins.
Naín félagsins skal vera: Bandalag hins evangeliska lúterska
kirkjufélags Islendinga í Yestrheimi.
II. Saniband bandálagsins og kirkjufélagsins.
§ 1. Bandalagið er til fyrir kirkjufélagið. það er því iiáð og frá því
öaðskiljanlegt, og verðr að taka alvarlega til greina þær leiðheining-
ar og ráðleggingar, sem frá því kunna að koma.
§ 2. Prestar kirkjufélagsins eru allir reglulegir meðlimir bandaiags-
ins og hafa fullkomin erindsreka-réttindi.
§ 3. Kirkjuþingsfulltrúar hafa málfrelsi á íundum bandalagsins.