Sameiningin - 01.10.1898, Blaðsíða 6
—11S—
eru þeir mjög illa sóttir yíirleitt, og árangrinn af allri starfseminni því
oröiö sýnilega mjög lítill. Vér höfðum gjört oss von um, að félagsskapr
þessi myndi veröa kii'kju vorri til blessunar, — aö ungmennin með því
myndi læra aö veröa sístarfandi að efiing og útbreiðslu orðsins vor á
meðai,—að aðsóknin að kirkjunni og sunnudagsskólanum myndi fara
vaxandi,— að nýtt kristindómslíf myndi fœrast yfir og inn í vorn
kirkjulega fólagsskap. En vér finnum mjög svo til þess og neyðumst
til að kannast við það, að sjáanlega liafa þessar vonir brugðizt. Vér
höfðum vonazt eftir, að þeir menn, sem bandalagsstarfseminni innan
lútersku kirkjunnar eru kunnugastir og til þess hafa verið kvaddir að
leiðbeina og hjálpa í þessari byrjunartilraun vor á meðal, myndi rétta
oss hjáiparhönd, Einnig þær vonir hafa algjörlega brugðizt.
Vér vonum, að á þessu bandalagsþingi komi fram margar og þýð-
ingarmiklar bendingar til vor, svo að bandalagsstarfsemin vor á meðal
taki framförum við þær og verði svo, eins og vér liöfðum gjört oss svo
miklar vonir um, meðlimum þess til andlegrar uppbyggingar og bless-
unar, vorum kirkjulega fólagsskap til eflingar og kristindómsorðinu til
úthreiðslu á meðal þeirra Islendinga í bœ þessum, sem fyrir utan þann
félagsskap standa.
Frá bandalagi St. Pálssafnaðar í Minneota.
(Eftir séra Björn B. Jónsson.)
Félagið var stofnað á nýarsdag 189G. Meðlimatala er nú 51. Lög
félagsins eru sniðin eftir lögum hinna lútersku bandalaga hér í landi.
Félagið heldr fundi einu sinni í viku mestan part ársins. Fundirnir
iiafa veriðþrennskonar : trúmálafundir, menntamálafundir ogskemmti-
fundir. í síðustu tíð hafa þó skemmtifundirnir að mestu verið lagðir
niðr, og eru nú oftast haldnir til skiftis trúmála- og menntamálafundir.
Sérstakar nefndir félagsmanna eru settar til að búa undir fundina. Á
trúmálafundunum hafa ýmsar lexíur úr biblíunni og kirkjusögunni
verið kenndar; og auk þess hafa ungmennin all-oft tekið til umtals
eitthvert trúaratriði, hafa skrifað um það stuttar greinir heirna hjá sér
og lesið þær svo á fundunum. Biblíulexíurnar hefir prestrinn oftast
útskýrt. Hefir á þann hátt verið gengið all-rœkilega í gegnum Gjörða-
hók postulanna og í sambandi við það lýst ástandi hinna fyrstu safn-
aða. Einnig heflr verið lesið bréf Páls til Kömverja og fieiri biblíu-
kaflar. Siðbótarsagan hefir á trúmálafundunum verið sögð af prestin-
um og æfisögur þeirra Lúters og Melanktons verið hugleiddar. Auk
þessa eru á trúmálafundunum sungin og lesinl andleg ljóð og farið með
kristilegar ritgjðrðir úr blöðum og bókum.
Á menntamálafundunum er farið með ýmsan fróðleik. Meðlimun-
um liefir t. d. verið sett fyrir að leita upplýsinga um eitthvert sögulegt
atriði eða persónur. Lesa þeir þá, hver eftir annan, það, sem þeir hafa
skrifað um efnið. Spurningum er spurt og svarað. Sérstök viðleitni
liefir verið gjörð á menntamálafundunum til að æfa unglingana í upp-
lestri og um tíma voru hafðar æfingar í íslenzkriréttritun. All-margar
rœður hafa á þessum fundum verið haldnar um íslenzkar bókmenntir.