Sameiningin - 01.10.1898, Síða 7
Reynt er að láta ungmennin sjálf taka sem mestan þátt í starfsem-
inni. Sjálf skipa þau öll embætti og nefndir og stýra fundunum.
Bandalagið hefir komið sér upp dálitlu bðkasafni, og fá félagsmenn
bœkrnar lánaðar á fundum og lesa þær lieima.
Frá bandalagi Þingvallasafnað'ar, Eyford, N.-Balc.
(Eftir Runólf Marteinsson.)
Þetta bandalag er hið þriðja í röð af bandalögum kirkjufélagsins.
Það var stofnað í Marz 1896. Fáir vildu sinna þeim félagsskap í fyrstu,
og satt að segja vorum vér öll, sem nokkuð áttum við þann fólagsskap,
í fyrstu mjög fákunnandi, og þar af leiðanda hvert axarskaftið á fœtr
öðru. Á fyrsta fundi mœttu að eins sjö manns. Lögin, sem fyrst voru
samþykkt, líkuðu sumum illa. Yerst var það þö, að söfnuðinum líkaði
illa við oss, og sýndist stundum, að það væri ómögulegt fyrir oss að hegða
oss þannig,að gjörðir vorar væri ekki lagðar út á verra veg. Vér gjörðum
alveg rangt í því að álíta prestinn ekki sjálfsagðan meðlim og leita ekki
hans ráða eins og skyldi. Þetta allt hefir orðið oss til ömetanlegs tjöns
í voru stríði. Sá skaðlegi misskilningr komst líka inn hjá sumu unga
fólkinu, að það væri hœgt að samríma dans við slíkan félagsskap.
Einnig þetta hafði mjög skaðvæn áhrif á hið unga og veika félag.
Þrátt fyrir allt þetta, sem á möti hefir blásið,er þö talsverð framför.
Bandalagið hefir glœtt félagsanda hjá meðlimum sínum. Það hefir
kennt þeim talsvert að starfa á fundum og í nefndum. Sumir félags-
menn hafa sýnt brennanda áhuga fyrir velferðarmálum bandalagsins
og lagt mikið á sig fyrir fólagsskapinn. Þö félagið sé enn mjög fá-
mennt, er það þö búið að koma upp myndarlegu fundarhúsi, og á vel
við, að það hús. sem er helgað nytsemi, fröðleik og kristilegri uppbygg-
ing, standi einmitt þar sem það stendr, skammt frá kirkju safnaðarins.
Þessi skemmtilega eign félagsins er nú nærri skuldlaus.
Trúmálafundir voru í fyrstu örðugastir viðreignar, og reyndum vér
fleira en eitt fyrirkomulag. Unga fölkið var fyrst tregt til að taka al-
mennan þátt í þeim fundum sérstaklega. Á þeim fundum tökum vér
fyrir kristniboðsmálið, ýms atriði úr kirkjusögunni, rœður um trúarleg
atriði, og síðastliðið sumar, æfisögur, starf og áhrif sumra helztu mann-
anna í gamla testamentinu.
Menntamála- og skemmti-fundir gengu yflr höfuð ekki illa, og var
margt nytsamlegt og skemmtanda, sem kom fram á þeim.
Eélag vort er mjög fámennt enn þá, en þó höfum vérgóða von fyrir
framtíðina og biðjum guð að blessa starf vort.
Frá bandalagi Pembina-safnaðar.
(Eftir Gunnar Jöhannsson.)
Bandalag Pembina-safnaðar var stofnað í Janúar 1897 með nálægt
30 meðlimum. Nú hefir það nærri 50 meðlimi. Fundir félagsins eru
þrennskonar: trúmálafundir, menntamálafundir og skemmtifundir.
Vanalega eru fundirnir haldnir mánaðarlega. Enn sem komið er
hefir félagið mjög lítið starfað, en nú hefir það í hyggju að kaupa altari