Sameiningin - 01.10.1898, Page 12
—124
leysa eíía ámynd, allt aS því hneyksli. Annars voru mjög ó-
verulegar breytingar gjörðar við guðsþjónustuform frum-
varpsins.
í staðinn fyrir skírnarform frumvarpsins, sem séra Valde-
mar Briem hafði samið, kom nefndin nú fram með annað form
fyrir þeirri kirkjuiegu athöfn, sniðið eptir skírnarformi, sem
nýlega er innleitt í dönsku kirkjunni, mað því að form séra
Valdemars þótti of langt. þessi tillaga nefndarinnar var sam-
þykkt. — Samþykkt var og sú tillaga frá nefndinni, að teknar
væri upp ákveðnar lesgreinir og bœnir við greftran framliðinna,
í því skj-ni að gjöra þá athöfn fyilri og álirifameiri, að dœmi
sœnsku og ensku kirkjunnar (samkvæmt bendingum frá séra
þorvaldi Bjarnarsyni á Melstað). — Flest-allt annað í formum
hins prentaða frumvarps fyrir embættisverkum presta var
samþykkt óbreytt.
f einu lagi var svo bandbókarfrumvarpið með áorðnum
breytingum borið upp til atkvæða og samþykkt í einu hljóði.
En biskupi og meðnefndarmönnum hans, þeim, er næst honum
búa, var falið á hendr, „að leggja síðustu hönd á verkið og sjá
um útgáfu hinnar nýju handbókar.“ í nefndinni eru þessir
menn : Hallgrímr biskup Sveinsson, séra þórhallr Bjarnarson,
séra Valdemar Briem, séra Jón Helgason og séra Jens Pálsson.
Hinum tveim síðast nefndu var bœtt við í nefndina á synodus
í fyrra.
Síðan farið var að eiga við þjóðminningardagahaldið úti á
íslandi hefir það sumsstaðar orðið að venju að velja til þess ein-
hvern sunnudag, og hefir það leitt til þess, að guðsþjónustur
þann dag hafa fallið niðr. Út af þessu var samkvæmt bending
frá biskupi á þessari synodus borin fram tillaga um það, að
prestar gengist fyrir því, að ef slíkar samkomur væti haldnar á
sunnudögum, þá væri guðsþjónusta haldin á þeim samkomum.
En sú tillaga var felld.
þá hreifði biskup enn eins og í fyrra nauðsyninni á því,
að fyrirkomulag synodusar yrði ba-tt. Hélt hann því fram, að
samkoma þessi gæti þá fyrst haft verulega þýðing, ef á henni
ætti sæti erindsrekar úr öllum prófastsdœmum landsins í stað-
inn fyrir frá að eins fímm prófastsdœmum eins og hingað til
Irefir verið ætlazt til. En jafnframt var bent á þau tormerki