Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1898, Blaðsíða 8

Sameiningin - 01.12.1898, Blaðsíða 8
-ltó - Svipaö og i jarðlífi Jesú. þeir, sem nú fagna, sem veröldin leikr við, sem eftirlætiö og yndið umfaðmar, missa sjönar ú jólatrénu og taka upp í þess stað krosstréð, — eg og þér allir. Söngrinn snýst í ekka og grát. Strengr þess hljóðfœris, er hæst gall, er slitinn. Gjafir og menjar liðnar undir lok. Hlátr og hjarta- gleði breytt í sorgarþunga og lífsalvöru. Hin léttu spor œsku- mannsins, er vinirnir dást að, snúast í einmana eyðimerkrgöngu flóttamanns, sem heimslánið hefir gjört að útlaga ogjafnvel sumir fornvinirnir ofsœkja. Frostkuldinn blæs bliknuðum lauf- um og frostnum snjónum yfir hvilu margra þeirra, er á liðnum jólum glöddu hjarta vort. Finnið þér ekki enn autt rúm við hlið yðar, þar sem þeir dvöldu ? Jólaendrminningin flytr oss svip þeirra. Orðin, samvistin, jólin, lífið, — sjáið þér það ekki ? Finnið þér ekki enn brenna á vörum yðar ástarkveðju kristinn- ar, sanntrúaðrar móður og föður? Mér finnst nú skilnaðarorðin, bœnarorðin, guðs orðin taka yfir allan heimshávaðann, alla hina ytri jólagleði, allan kenningarþyt sjálfbirginganna, allan uppreisnarandann, sem vill varpa frá sér jólaendrminningun' nm og Jesú, kristindómnum og jólaljósinu, sem öðru fánýtu feigðarblysi. Úr fornum sögum minnizt þér, að forfeðrnir gáfu sínum, helzt við skilnað eða á deyjanda degi, einhvern menjagrip, líf- stein, er mátti frelsa, kerti, er varðveitti líf eigandans svo lengi sem það brann ekki upp. — þeir feðr, sem elsuðu yðr heitast, tendruðu ljós við vöggu yðar, sem þetta sjáið, á jólunum. Trúin á Jesúm er slíkt ljós fyrir hinn andlega mann, slíkt frelsisblys á hinni villigjörnu vegferð mannsins um heiminn. Eins lengi og maðr- inn á það í hjartanu, lifir hann andlega. Engin plága, enginn sjúknaðr í heimi andans, ekkert slys í lifinu getr þá látið þann mann deyja. Engin eitr-skeyti heimsins verða honum að meini. —það er ekkert til hið innra í manninum sjálfum, né hið ytra í lífi annarra, sem hann þarf að óttast andlegt og trúarlegt fjörtjón af, rneðan slíkt Ijós er óútbrunnið. En jafnskjótt og jólakertið þetta, sem hér er átt við, brennr út, jafnskjótt og lifandi trú á Jesúm slokknar í hjartanu, hverfr öll hin andlega jólabirta. Maðrinn sitr eftir í dauðahúmi syndarinnar, með nálykt dauðans

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.