Fréttablaðið - 24.12.2010, Síða 6
6 24. desember 2010 FÖSTUDAGUR
STJÓRNMÁL Í fjárlögum næsta árs
er gert ráð fyrir að útgjöld ríkis-
ins verði 510 milljarðar króna. Á
árinu sem er að líða námu ríkisút-
gjöld 560 milljörðum. Tekjur ríkis-
ins verða 472 milljarðar á næsta ári
en voru 478 milljarðar í ár.
Þetta kemur fram í Hagfréttum
Alþingis sem upplýsingaþjónusta
þingsins gefur út.
Í þeim segir að samkvæmt fjár-
lögum verði halli ríkissjóðs á næsta
ári rúmir 37 milljarðar sem sé lítils
háttar hækkun frá frumvarpinu.
„Venjulega hafa fjárlög hækkað tölu-
vert í meðförum þingsins og sá góði
ásetningur að ná jöfnuði, eða jafn-
vel tekjuafgangi, farið fyrir lítið.
Nú er annað uppi á teningnum enda
hefur ríkisstjórnin í samvinnu við
AGS lagt ríka áherslu á að koma á
rammafjárlögum og þrátt fyrir
töluverðar breytingar á fjárlögun-
um breyttist ramminn ekki að neinu
ráði,“ segir í Hagfréttum.
Þá er á það bent að venjan hafi
verið sú að fjáraukalög hafi falið í
sér töluverðan útgjaldaauka. „Nú
brá svo við að útgjaldaramminn
dróst saman um rúmar 900 millj-
ónir króna. Tekjuliðurinn hækkaði
hins vegar um tæpa sextán millj-
arða. Jöfnuður ársins 2010 á sam-
kvæmt lögum að vera neikvæður
um rúma 82 milljarða en var nei-
kvæður um tæpa 99 milljarða.“ Í
Hagfréttunum segir enn fremur að
þess séu fá, ef nokkur dæmi, að tekj-
ur aukist milli samþykktar fjárlaga
og fjáraukalaga. bjorn@frettabladid.is
VIÐ SVISSNESKA SENDIRÁÐIÐ Ítalska
lögreglan mætir á vettvang.
NORDICPHOTOS/AFP
ÍTALÍA, AP Bögglasprengjur
sprungu í sendiráðum Sviss og
Síle í Róm í gær, með þeim afleið-
ingum að tveir menn særðust.
Einnig bárust fregnir af grun-
samlegri póstsendingu í sendi-
ráði Úkraínu þar í borg. Ákveðið
var að kanna þegar í stað allan
póst sem erlendum sendiráðum í
borginni hafði borist.
Gianni Alemanno, borgarstjóri
í Róm, sagði lögregluna telja að
árásirnar væru alþjóðlegar í eðli
sínu, ekki innlendar.
Sprengingin í svissneska sendi-
ráðinu varð um hádegisbil, en
þremur stundum síðar sprakk
sprengjan í sendiráði Síle. - gb
Sprengjurárásir í Róm:
Árásum beint
að sendiráðum
Við óskum viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum
gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári með
þökkum fyrir viðskiptin á því sem er að líða.
Árlegur styrkur MP banka til góðgerðarfélags, sem
viðskiptavinir tóku þátt í að velja, fer til Einstakra barna,
stuðningsfélags barna með sjaldgæfa sjúkdóma eða
skerðingar.
Starfsfólk MP banka
Hátíðarkveðja
frá MP banka
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Útgjöldin lækka um
50 milljarða milli ára
Ríkisútgjöld næsta árs verða 510 milljarðar króna samkvæmt nýsamþykktum
fjárlögum. Það er 50 milljörðum króna lægri fjárhæð en á árinu sem er að líða.
Helstu tekjustofnar 2008 2009 2010 2011
Skattar einstaklinga 133,0 103,5 119,2 114,0
Skattar lögaðila 32,9 22,7 30,9 33,8
Tryggingagjald 40,8 38,9 62,3 62,1
Virðisaukaskattur 134,2 119,6 126,9 132,0
Aðrir skattar 72,7 81,7 81,7 92,5
Aðrar tekjur 58,6 50,9 56,7 38,1
Samtals 472,2 417,3 477,7 472,5
Útgjöld
Ráðuneyti 2008 2009 2010 2011
Æðsta stjórn 3,6 3,8 3,8 3,5
Forsætisrn. 2,5 1,1 0,9 0,9
Mennta- & menn.rn. 55,8 59,6 60,0 57,1
Utanríkisrn. 9,8 11,5 13,1 10,8
Sjávar- & landb.rn. 18,6 19,2 19,5 18,6
Innanríkisrn. 76,8 75,3 66,7 59,1
Velferðarrn. 195,3 230,9 225,0 209,4
Fjármálarn. 274,6 61,3 83,7 61,6
Iðnaðarn. 5,9 6,3 6,4 5,0
Efnah.- & viðsk.rn. 2,6 2,8 3,2 3,3
Umhverfisrn. 6,9 7,5 7,2 6,8
Vaxtagjöld 35,5 89,4 70,3 73,7
Samtals 687,9 568,7 559,8 509,8
Helstu tekjustofnar og útgjöld ráðuneyta 2008-2011
Tölur eru í milljörðum króna Heimild: Hagfréttir
FÓLK Sveinn Bjarki Brynjarsson, sextán ára ljósmynd-
ari úr Árbæ, tók við verðlaunum fyrir bestu ljósmynd-
ina af tunglmyrkvanum fyrr í vikunni í gær. Ólafur
Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, afhenti Sveini
verðlaunin, myndavél, í húsakynnum Fréttablaðsins.
„Mér fannst þetta frekar flott mynd og átti von
á því að vera ofarlega en ekki vinna,“ segir Sveinn
Bjarki. Hann stundar nám við MS og æfir fótbolta
auk þess að hafa áhuga á ljósmyndun. „Pabbi minn er
ljósmyndari og gaf mér gömlu vélina sína fyrir einu
og hálfu eða tveimur árum og ég er búinn að vera að
leika mér með hana.“ Sveinn Bjarki heyrði auglýs-
ingu um keppnina í útvarpinu morguninn sem tungl-
myrkvinn varð. „Ég ákvað að drífa mig bara út. Pabbi
vaknaði svo seinna og kom með hugmyndina um að
hafa fólk inni á myndinni,“ segir Sveinn Bjarki. - þeb
Sveinn Bjarki Brynjarsson bar sigur úr býtum í ljósmyndakeppni Fréttablaðsins:
Fékk myndavél í verðlaun
TEKIÐ VIÐ MYNDAVÉLINNI Ólafur Stephensen, ritstjóri Frétta-
blaðsins, afhenti Sveini myndavélina í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEIÐRAÐIR Nikulás A. Halldórsson, skip-
stjóri á Goðafossi (til vinstri), tekur við
viðurkenningu úr hendi Gylfa Sigfússon-
ar, forstjóra Eimskips.
SAMGÖNGUR Áhöfnin á Goða-
fossi, skipi Eimskipafélagsins,
var í gær heiðruð fyrir hetjulega
framgöngu við slökkvistörf þegar
eldur kom upp í skipinu 30. októb-
er síðastliðinn.
Í tilkynningu frá Eimskipi
segir að öguð vinnubrögð og
snarræði áhafnarinnar hafi skipt
sköpum um að hvorki urðu slys á
mönnum né alvarlegt tjón á skip-
inu vegna brunans.
Þar er haft eftir Gylfa Sigfús-
syni, forstjóra Eimskips, að
áhöfnin hafi unnið hetjulegt
björgunarstarf við einar verstu
aðstæður sem hægt sé að hugsa
sér.
Áhöfnin á Goðafossi heiðruð:
Hetjudáð við
slökkvistarf
ORKUMÁL Landsvirkjun hefur
keypt fjögurra prósenta hlut Þing-
eyjarsveitar í einkahlutafélaginu
Þeistareykjum ehf. Kaupverðið er
um tvær milljónir Bandaríkjadala.
Landsvirkjun á eftir kaupin
96,7 prósent í félaginu. Orkuveita
Húsavíkur á 3,2 prósent og Þing-
eyjarsveit 0,087 prósent. Þeist-
areykir ehf. ætla að halda áfram
rannsóknum á jarðhitasvæðinu að
Þeista reykjum á næsta ári. Félag-
ið gerir ráð fyrir því að fjárfesta
í rannsóknum og undirbúnings-
framkvæmdum fyrir um 720 millj-
ónir á næsta ári. - þeb
Landsvirkjun á nú 96,7%:
Kaupir hlut í
Þeistareykjum
Þekkir þú einhvern sem þurfti
að leita til hjálparsamtaka í
desember?
JÁ 26,3%
NEI 73,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Borðaðir þú skötu á Þorláks-
messu?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN