Sameiningin - 01.06.1902, Side 5
53
hólm svo að kalla viS allan heiminn. Slík ummyndan á þeim,
slíkr máttr, slíkt hugrekki, gat aS eins orSiS fyrir guSlegt
kraftaverk. Og vér vitum, hvaða kraftaverk það var, sem
kom þessari breyting til leiSar —upprisa Jesú næsta sunnu-
dag eftir dauSa hans,— hiS dýrðlega undr páskahátíSarinnar.
Snúum oss nú í hugleiSingum vorum aS lexíu þeirri úr
upprisu-sögu Jesú, sem nú er texti minn. Þar segir frá fyrstu
opinberan Jesú eftir upprisuna, opinberaninni, sem Maríu frá
Magdala hlotnaSist. I guSspjallskafla þessum er hún sú ein-
asta af konunum, sem birtist á páskadagsmorguninn við gröf
frelsarans. Jóhannes postuli segir hér frá. I hinum guS-
spjöllunum er frá því sagt, aS dálítill hópr kvenna þeirra,
sem heyrSu til ástvinum hans, hafi um sólaruppkomu þann
dag gengiS út að gröfinni, berandi srnyrsl til þess að smyrja
líkið — fullgjöra smurning þá, sem í flýti hafði verið fram-
kvæmd af þeim Jósef frá Arematía og Nikodemusi á föstu-
dagskvöld samfara greftraninni í steinhvelfingunni. Og með-
al þeirra er þessi kona nefnd — Marfa Magdalena. En hér
birtist hún ein síns liðs. AnnaShvort hefir hún komiS fyrr
um morguninn til grafarinnar en þær hinar, ellegar, hafi hún
fylgzt meS þeim, þá hefir hún skilið viS þær undir eins og
hún sá, aS gröfin var opin, án þess að gefa sér neinn tíma til
þess aS líta inn í hana. Hún skundar — vafalaust í ákafri
geðshrœring og mesta dauðans ofboði — aftr inn í borgina á
fund lærisveinanna, þeirra Símonar Pétrs og Jóhannesar,
segjandi við þá undir eins og hún hittir þá: ,,ÞaS er búiS aS
taka drottin burt úr gröfinni, og vér vitum ekki, hvar hann
hefir veriS lagðr. “ ÞaS að hann væri upp risinn órar hana
ekki fyrir. En við það festir hún hugann í angist hjartans,
að líkiS sé horfiS. Hún hafSi séS, að steinninn var tekinn
frá grafarmunnanum. ÞaS taldi hún víst merki þess, aS
gröfin væri þá líka tóm. Einhver hafði vissulega tekið lík-
ama meistarans burt. Hver gat hafa gjört þaS? Vinr eða
óvinr ? Og í hverju skyni? Hún vissi þaS ekki. Ef þaS
var óvinr, gat það þá hafa verið til annars en aS misþyrma
Jesú enn meir látnum, smána líkama hans? Ef það var vinr,
hvað gat þessi burtfœrsla líksins þýtt? ÞaS var ráðgáta, sem