Sameiningin - 01.06.1902, Blaðsíða 12
6o
biblíunnar. Niðrstaða sú, er þeir komast a8 viö þær rann-
sóknir, verör að vera nokkurn veginn óyggjandi áSr en hún
er gjörð að eign almennings. Menn veröa aö vera var-
kárir, meö því aö þeir, sem eru eins og fólk flest, geta svo
hœglega lent í misskilningi og komizt til ályktana, sem eru
þvert á móti tilætlan vísindamannanna.
Þaö, sem vel getr samrímzt trúnni og jafnvel veriö henni
til stuðnings hjá vísindamanninum, getr hœglega orðið hættu-
legt í trúarlegu tilliti þeim mönnum, sem ekki hafa nœgileg
þekkingarskilyröi, og jafnvel svift þá trúnni algjörlega. Þeg-
ar þessa er gætt, hvað myndi þá vera að segja um ,,kritík“
. þá á gamla testamentinu, sem nú tíökast ?
Til stórra muna hefir hún á sér þann blæ, sem sýnir, að
þar ráöa ástríður hleypidómanna. Mikið af því, sem menn
láta opinberlega til sín heyra því máli til stuönings, einkennir
sig aö því, aö þar er svo lítið gætt hófs og stillingar, svo
sterklega hrósað sigri fyrirfram, svo mjög skrumaö af ágæti
hinna nýju kenninga, að enginn ætti aö lá neinum, þó aö þeir
sé ófúsir á aö kannast viö þetta sem sönn vísindi. Þetta
hlýtr aö eiga rót sína aö rekja til persónulegra hleypidóma.
Það líkist svo œstum árásum. Menn vilja fá borð hroöin.
Neitanin er gjörö að eina áreiðanlega einkenninu á öllum
sönnum vísindum. Talsmenn svona lagaðrar ,,kritíkar“ þola
því engin mótmæli. Andlitssvipr þeirra og orðalag þeirra
allt er svo, að virðast má, aö þeir vildi mega dauðrota hvern,
sem þor hefir til að láta nokkur andœfandi orð til sín heyra,
með Þórs-hamri hinnar óskeikulu ,,kritíkar“.
,,Kritíkin“ í þessari mynd gjörir nú víst út af við sig
sjálf. En áör en sá tími er kominn getr hún verið búin að
gjöra ýmislegt illt. Hún er fyrir löngu komin út fyrir tak-
mörk þess, sem vísindum er leyfilegt. Margt, sem hún heldr
fram sem óyggjanda sannleik, mun aldrei reynast annað en
ósannanlegar staöhœfingar. Þannig er variö kenningum henn-
ar um þaö, að Kronikubœkrnar hafi í þeim tilgangi verið
fœröar í letr aö umturna sögulegum atburðum, að Jobsbók sé
ekki annað en skáldsaga, að Daníelsbók sé æfintýri, o.s.frv.
Margar ályktanir, sem ,,kritíkin“ kallar vísindalega niör-