Sameiningin - 01.02.1905, Síða 11
187
bann syngr: ,,Lát þér þóknast orðræSur míns munns og mál-
iS míns hjarta, drottinn, mitt bjarg og minn endurlausnari. “
Þegar vér prestar þá eigum aö vinna þetta alvarlega em-
bættisverk, aö tala viö útfarir framliðinna, þá látum oss vera
ráövanda gagnvart guöi og náungum vorum í þessu tilliti: að
taka allt til greina og hugsa um alla og hvað þeir eru og
þurfa.
En í ráðvendninni er og annaö; og það er þetta: Hvað
segir guö um oss og líf og dauða ogeilífð? Hvað myndi Jesús
vilja prédika? Ef Tesús væri hér sýnilega staddr við þessa
líkkistu eða þessa gröf, hvað myndi hann þá segja? Getr
nokkur bent mér á, að Jesús eða postularnir hafi á nokkrum
stað í hinum helgu orðum sínum eða ritum talað um önnur
undirstöðuatriði eða aðalefni en þessi: synd, dauða, náð,
cndrlausn í Kristi? Það má víst óhætt fullyrða, að við öll
tœkifœri, allsstaðar, í tíma og ótíma, hafa þeir talað um þetta.
Það myndi fara oss illa að fara að breyta út af þvf. Það er
hætt við, að ekkert gott kœmi af því. Páll postuli heldr t.
d. líkrœðu—eða það, er svo má kalla, í bréfi sínu hinu fyrra
til Korinþumanna; eins Kristr í mörgu því, sem hann segir;
en eg finn, að umtals efni þeirra er þetta: synd, dauði sem
laun syndarinnar, náð, upprisa framliðinna, sáluhjálp og sýkn
fyrir sakir Jesú Krists. Eg finn ekkert annað. Eg heyri að
vísu Krist segja við ekkjuna í Nain: ,,Grát þú ekki. “ Þá
huggun gefr hann hinu hrellda hjarta móðurinnar. Hann
stendr þar hjá henni með lífið í sínu valdi og gefr hennieinka-
soninn hennar aftr. En þa8 lff, sem hann boðar og veitir, er
til að eins fyrir hann, fyrir hans endrlausnarverk. Við jarð-
arförina eiga allir að heyra þetta, hvernig sem ástatt er fyrir
þeim, hvort heldr það eru vantrúarmenn eða hrœsnarar eöa
trúaðir eða syrgjendr, Það orð, sá boðskapr, mun nú á vor-
um dögum, eins og áðr vinna sitt verk, og eins mun verða
svo lengi sem heimrinn stendr. Og sem þjónar Krists eigum
vér ekki að standa þeim boðskap í vegi. í því eigum vér að
vera ráðvandir verkamenn og hisprslaust að boða hann. Ef
vér ekki erum ráðvandir í þessu, þá verðum vér svikarar. Það
er ekkisatt, aö vér séum á greftrardeginum þjónar þeirra,sem