Sameiningin - 01.03.1905, Qupperneq 7
3
dagsskólasalnum íkjallaranum allt frá því, er kirkjan í miöjum
Janúar komst aö nýju undir þak. Hiö innra lítr nú kirkjan
fullt eins vel út og áör en hún brann. Tréverk allt er þar nú
eikarmálað og samsvarar útliti sætanna betr en í fyrstu. Um
kjallara-ofnana er einkar vel búiö, langt fram yfir þaö, er áör
var. Eldsábyrgöarfélagið borgaði $3791.56 fyrir skemmdir á
því, er hjá því var votryggt. En sæti, altarisstólar og rafljósa-
fœri voru ekki í neinni eldsábyrgð. Viðgjörð á sætum hefir
kostaö $107, á stólunum $30 og á ljósfœrum $75. Óvotryggt
var einnig nýtt og dýrt píanó, sem Bandalagið haffi keypt og
að eins að.litlu leyti var borgað; en um skemmdir á því verðr
enn ekki neitt sagt. Tvö orgön kirkjunni tilheyrandi skemm^-
ust lítið. Eins gólfábreiður.—Söfnuðir þeir, sem séra Björn
B. Jónsson þjónar, sendu Fyrsta lúterska söfnuöi rétt eftir
nýár að gjöf $220.75.
Hr. Jón J. Vopni hefir enn að nýju lagt sig allan fram
til þess að bæði fljótt og vel yrði bœtt úr skemmdunum á
kirkjunni.—Með vorinu veröa nýjar aðal-dyr settar á sunnu-
dagsskólasalinn út úr annarri hliöinni; þá verða og fullgjörðar
ýmsar smáviðgjörðir utan kirkju.
Guðbrar.dsbiblíu, sem lá á borði við altarið, er kirkjan
brann, var með nauðum bjargað út úr eldinum, lítt skemmdri.
Nýtt altari, vandað og fagrt, 125 dollara virði, er nú
komið íkirkjuna. Það er gjöf frá kvenfélagi safnaðarins.
A sd.skólaþinginu í W. peg í. Febr., sem getið er um í
seinasta blaði ,,Sam. “, var talað um, hvernig kenna eigi
biblíuna, og hóf séra Friðrik J. Bergmann þær umrœður; þá
um söngkennslu—frú Lára Bjarnason; séra Jón Bjarnason
sagði frá sd.skólaþinginu í Jerúsalem í Apríl í fyrra. Skrif-
legar spurningar viðvíkjandi sd.skólanum, er séra Fr. J. B.
svaraði, og söngar á undan og eftir.
A bandalagsþinginu um sama leyti var fyrst rœtt um
nauðsyn þess að hafa prógrömm funda vel undirbúin, þar næst
um íslenzku á fundum, þá um fyrirhugaða söngbók banda-
lagsins (og sunnudagsskólans), um þaö að hverju gagni banda-
lögin geta orðið, og (að litlu leyti) um það hvað að sé hjá