Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1907, Page 20

Sameiningin - 01.08.1907, Page 20
176 fannst honum það skylda sín að fara aö starfa eitthvaö. Hann kaus sér þaö aö reyna aö ná fullorðnu fólki inn í sunnudags- skólann, og hann afréð að nota sömu aðferð eins og hafði verið notuð við hann. Hann stofnaði því sérstakan flokk í sunnu- dagsskóla kirkju sinnar fyrir fullorðna karlmenn. Sú stofnun hvílir á tveimr einföldum grundvallarsannindum: Fólkið næst með því að sýna því persónulegan hlýleik; og fólkið heldur á- fram með því, að því sé fengið starf og starfið látið fara fram eins skipulega og í beztu verzlunarhúsum. Flokknum var gef- ið sérstakt nafn: Baraca, sem er hebreskt orð úr 2. Kron 20, 26 og rnerkir blessun. Síðan kaus flokkrinn sér embættismenn. Það eru um 15 ár síðan þessi flokkr hófst. Hugmyndin hefir reynzt vel. Flokkrinn er orðinn ákaflega stór. Flokkr með samskonar fyrirkomulagi var stofnaðr fyrir kvenfólk. Hugmyndin hefir útbreiðzt; flokkar með sama fyrirkomulagi verið stofnaðir víðsvegar, svo meðlimir þeirra eru nú samtals um 200,000. Ýms dœmi þess sýndi hr. Hudson, hvernig starfið fer fram. Flokkrinn sjálfr í heild sinni vinnr að því, að auka með- limatölu sína. Liggr þá oft fyrir spurningin um það, hvernig það geti tekizt að ná einhverjum sérstökum manni. Er því þá stundum ráðstafað þannig, að einhverjum meðlim er falið að tala við þann mann á mánudag og bjóða honum í flokkinn, öðr- um á þriðjudag, og á sama hátt ráðstafað hinurn dögum vik- unnar. Fer þá maðrinn, sem verðr fyrir heimsóknunum, að hugsa, að það hljóti að vera eitthvað varið í starf, sem svona sé unnið. Sögu sagði hann af því, að eitt sinn vantaði heilan hóp af meðlimum flokksins. Þegar hann fór að grennslast eftir á- stœðum fyrir því, var honum sagt, að þeir væri allir í knattleik og að ómögulegý væri að fá þá aftr fyrr en með haustinu. Það væri frábær snillingr í knattleik, sem stœði fyrir þeirri skemmt- un á hverjum sunnudegi, og piltarnir þyrptist utan um hann, Þá fór hr. Hudson að læra knattleik og fá menn sína til þess að koma í leik með þessum snilling. Svo fóru leikir um síðir, að maðr þessi gjörðist meðlimr í Saraca-flokknum. Knattleik- irnir fóru fram á öðrum dögum en sunnudögum og allir komu til baka, sem höfðu yfirgefið flokkinn. Aftrhvarfsdagr. Eitt atriði enn vil eg leyfa mér að nefna í sambandi við sunnudagsskóla-þing þetta. Það er farið að tíðkast víða í sunnudagsskólum reformeruðu kirkjudeildanna, að tilteknir eru annað veifið fyrirfram sunnudagar, sem nefndir eru aftrhvarfssunnudagar (decision day). Er þá ætlazt til, að

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.