Sameiningin - 01.08.1907, Blaðsíða 23
179
sem áðr átti heima í Minneota, Minn. Útgáfan er prýðilega af
hendi leyst, og eiga þeir báðir, sem helzt hafa að henni unnið,
beztu þakkir skilið fyrir frammistöðuna. Það eru að eins úr-
valsljóð eftir „Fjallaskáldið“ íslenzka, sem hér birtast. 1 hin-
um fyrri útgáfum af kvæðum Kristjáns var sumt, og ekki all-
fátt, sem ýmist hafði allsendis ekkert skáldskapar-gildi eða bein-
línis ljótt og óhœfilegt til að birtast á prenti. Öllu slíku er nú
rutt burt í hinni nýju útgáfu, sem einmitt fyrir þá sök er miklu
meira virði en hinar eldri. En svo eykr það og verðmæti henn-
ar, að aftan við kvæðin er prentuð einkar vönduð ritgjörð um
skáldið og umheim hans í œsku, þar sem gjörð er grein fyrir
því, að hann mótaðist svo andlega eins og ljóð hans í heild sinni
sýna. Ritgjörð sú er eftir séra Björn, og er Þar í þáttr frá
föður hans heitnum, bróður Kristjáns, mjög mikils virði. Tvö
kvæði eru í nýju útgáfunni, sem ekki voru i hinum fyrri.
Verð bókarinnar í vönduðu bandi er $1.25 og i skrautbandi
Bandalag unga fólksins í Fyrsta lúterska söfnuði í Winni-
peg hafði fyrir löngu ákveðið að hafa í ár sumarskemmtan sína
—picnic—á Gimli í Nýja íslandi 9. Ágúst. Bauð það samskon-
ar félögum í Tjaldbúðarsöfnuði og í Selkirk að vera með í
þeirri skemmtiför, sem þau og Þágu fúslega. Förin heppnað-
ist ágætlega. í söfnuðinum lút. á Gimli er eitt slíkt bandalag,
og bœttust eins og að sjálfsögðu meðlimir þess í hópinn. Kven-
félag Gimli-safnaðar sá mönnum fyrir líkamlegum veitingum.
, Park“-svæði mjög prýðilegt er norðan til í bœjarstœðinu, og
hófst skemmti-samkvæmið þar með bœnagjörð, söng og stuttu
rœðuhaldi, sem 'hr. Karl J. Ólson stýrði. Síðan fórti fram
margskonar líkamts-íþróttir cg leikir. Veðrið var inndælt.
Fimm til sex hundruð manns tóku þátt í skemmtiförinni.
íslendinga-byggðin í Muskoka í Ontario dvínar óðum. Að
eins fjórar íslenzkar fjölskyldur eiga þar nú heima—við póst-
hús það, er Ffekla nefnist. Einn hinna fáu íslendinga Þar, hr.
Gísli Einarsson, sem átt hefir nærri því þrjátíu ár heima í landi
þessu þar austr frá, brá sér hingað til vestrbyggðanna íslenzku
fWinnipeg, Selkirk, GimliJ í byrjan þessa mánaðar, og frœddi
hann oss um þetta. Hann gaf 5 dollara til hins fyrirhugaða
gamalmennahælis í Winnipeg, sem kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar hefir á dagskrá, og má nokkuð af því marka áhuga
hans fyrir kristilegum félagsmálum vorum.