Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1950, Page 8

Sameiningin - 01.09.1950, Page 8
118 Sameiningin einkanlega hjá eldra fólki sem ekki gat eða vildi dansa. Eftir því sem næst verður komist, sóttu um fimm þús- und manns þessa miklu hátíð. Fjallkona dagsins var frú Steinunn Somerville en hirð- meyjar þær Margaret Stefanía Anderson og Esther Hilda Stevens og eru þær allar afkomendur fyrstu landnáms- manna N. íslands. Fjallkonan sómdi sér ágætlega og flutti ávarp sitt vel og sköruglega. Fulltrúi íslands á hátíðinni var Pálmi Hannesson, rektor Mentaskólans í Reykjavík. Hann flutti fagrar kveðjur frá ættlandinu og var öll hans framkoma mjög lofuð af þeim sem til hans heyrðu. Ýmsir aðrir fluttu einnig kveðjur svo sem Grettir L. Jóhannsson, ræðismaður; Douglas Campbell, forsætisráðherra Manitobafylkis; Garnet Coulter, borgar- stjóri í Winnipeg; Barney Egilson, bæjarstjóri á Gimli; Sigurður Vopnfjörð, oddviti Bifrastarsveitar; W. E. Gordon, bæjarstjóri í Selkirk. Aðalræður dagsins fluttu þeir prófessorarnir Thorberg- ur Thorvaldson og Skúli Johnson. Thorbergur mælti á ís- lenzku fyrir minni landnemanna, en Skúli á ensku og nefndi erindi sitt „Our Heritage11. Báðar ræðurnar voru vel hugs- aðar og vel samdar, sem við var að búast. Fimm skáld fluttu kvæði og voru það: Þ. Þ. Þorsteinsson, „Minni Landnem- anna“; E. P. Jónsson, „Hugsað til íslands“; G. O. Einarsson, „Landnemaljóð“; Frank Olson, „Willow Point“ og Albert Halldorson, „A Toast to Canada“. Kvæði Þ. Þ. Þ. má óefað skipa í flokk með Sandy Bar Guttorms og beztu kvæðum Stephans G., þeirrar tegundar. Kvæði Einars túlkaði fagur- lega tilfinningar íslenzku útlaganna til ættlands síns enda hafa ekki aðrir hér þýðlegar um þá strengi strokið. Söngflokkur Nýja-íslands undir stjórn Jóhannesar Páls- sonar frá Geysi söng þarna mörg lög af mestu snild og sögðu þeir sem vit hafa á, að sjaldan hafi blandaður kór sungið betur á útisamkomum á þessum slóðum. Þá skemti einnig Ólafur N. Kárdal með einsöng og túlkaði hann vel þau lög, sem hann fór með og er raddmaður mikill. Þessari miklu landnámshátíð stjórnaði séra Valdimar J Eylands af skörungsskap og lipurð sem ekki er á allra færi. Víst er um það að landnámshátíð þessi tókst ágætlega og varð forstöðunefndinni og öðrum, sem að henni stóðu, til stórsóma. Hitt er annað mál að hún hefði gjarnan mátt vera

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.