Sameiningin - 01.09.1950, Blaðsíða 17
Sameiningin
127
Þessi hópur vissi, að við hjónin áttum 50 ára giftingar-
afmæli 30. júní síðastliðinn, og ákváðu þau að eiga fagnað-
arfund með okkur þann dag. Paines hjónin buðu að hafa
mótið hjá sér. Dr. Paine er umsjónarmaður heilsuhælisins í
Ninette og eiga þau heimili þar. Á því heimili var konan
mín meir en sex mánuði í vetur eftir áfall, sem hún varð
fyrir í Winnipeg, í desember. Þau hjónin önnuðust mótið
að öllu leyti. Konan mín var þá með þeim í Ninette, en ég
um þær mundir í Winnipeg.
Miðvikudaginn, 28. júní, komu þau Dr. Hermann, kona
hans Anna, og systir hans Guðrún, með flugskipi frá Van-
couver til Winnipeg. Ásamt tengdabróður mínum, A. S.
Bardal, og konu hans Margréti, mætti ég þeim á flugvell-
inum, og fórum við öll heim til Miss Theodoru Hermann, á
Lenore St., sem efndi til móttökufagnaðar og bauð þangað
nokkrum vinum. Daginn eftir kom Jón, með lest, austan
frá Hudson. Þann dag fóru þau fjögur og ég með þeim í bíl
vestur til Ninette.
Næsta dag, föstudaginn, 30. júní var mótið haldið, í
húsi Paines hjónanna. Frá Winnipeg komu þau Mr. og Mrs
A. S. Bardal, Miss Theodara Hermann, Mrs. Lára Burns,-
og Miss Jenny Johnson. Eftir beiðni okkar kom séra Eric
H. Sigmar, frá Glenboro, til að annast guðræknisathöfn. Þar
var einnig með okkur Payne, prestur Sameinuðu kirkjunnar
canadísku í Ninette. Flytur hann einnig guðsþjónustur á
heilsuhælinu. Dr. Paine, tengdasonur okkar, skipaði for-
sæti á mótinu og fórst honum það prýðilega. Hann ávarp-
aði hópinn með hlýjum og vel völdum orðum. Bað hann
svo séra Eric að annast guðræknisstundina. Hann lét syngja
tvo sálma, las Biblíukafla, flutti ávarp og bæn. Síðar söng
hann einsöng. Alt var þetta yndislega af hendi leyst. Úr
djúpi sinnar tryggu vináttu, flutti tengdabróðir minn, A.
S. Bardal, nokkrar endurminningar, ásamt árnaðaróskum.
Jón sonur okkar hafði orð fyrir systkinahópnum og flutti
okkur ljúft mál. Payne prestur flutti vingjarnlegar ham-
ingjuóskir. Ég túlkaði innilegt þakklæti okkar hjónanna
með nokkrum orðum. Veizlufagnaðurinn var með fullum
hátíðarbrag, og allir samankomnir áttu þar glaða stund
hver með öðrum.