Sameiningin - 01.09.1950, Blaðsíða 12
122
Sameiningin
og dæmdu í æfilangt fangelsi. Þó mun hann vera lífs, enn
sem komið er. En Lajos Ordass, biskupinn lúterski, sem
borinn var svipaðri sök og hneptur í varðhald, hefir nú
fengið lausn úr fangelsi og er í gæzlu heima hjá sér. Hvað
valdið hafi þeirri linkind hjá Bolsevikum er ekki ljóst.
-----☆-------
Ungmennadeild Ensku kirkjunnar gaf út nýlega messu-
form til notkunar á Æskudegi Bretaveldis — Empire Youth
Day. í því skjali standa þessi bænarorð meðal annara:
„Fyrirgef oss, vér biðjum þig, allrar ávirðingar í sögu veldis
vors; ásælnina, hugsunarleysið um hag lítilmagnans; for-
dómana og deilurnar, sem vér höfum egnt og aukið; þröng-
sýnið, óréttlætið og vorkunarleysið". —
Slíka bersögli gátu margir eldri leikmenn með engu
móti þolað. Þeir heimtuðu, að þessum bænarorðum yrði
breytt; kváðu víst að kommúnistar mundu gjöra sér mat
úr öðru eins. — Kusu þeir heldur að vera þagmælskir við
Guð en opinskáir við illgjarna veröld.
-----☆•------
Um þessar mundir hafa tveir heimsfrægir kirkjumenn
verið á ferð hér vestan hafs — Niemöller prestur, og Japan-
inn Toyohiko Kagawa.
Víða í Japan, segir Kagawa, geta sunnudagsskólar ekki
annast helminginn af þeim barna-skara, sem beiðist upp-
fræðingar hjá þeim á hverri helgi. Veldur því, segir hann,
skortur á húsnæði og kennurum. Kagawa biður í Drottins
nafni um fleiri trúboða; ef ekki presta, þá leikmenn, bara
að þeir séu góðir að kenna, og vel kristnir.
Báðir eru þeir friðarmenn, Kagawa og Niemöller
Kagawa kannast þó við, að alþjóðaher muni nauðsynlegur
til löggæzlu fyrst um sinn. Kennir hann ofbeldisstefnu
Rússa um stríðið í Kóreu. En Niemöller segir, að þegar í
óefni sé komið, þá muni trúin reynast öflugri til friðar
en ótti og yfirgangur.
-----☆-------
Samsæti mikið og vegsamlegt héldu Demokratar
snemma í sumar, suður í Chicago. Spöruðu þeir hvorki mat
né drykk, og sízt ræðuhöldin, á þeim heilladegi. Sjálfur for-
setinn flutti þar ræðu og hældi flokki sínum fyrir dáðir
hans allar, og hollustu við land og þjóð. — Hátíðarhaldið
kostaði stórfé, eins og nærri má geta.