Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1950, Qupperneq 10

Sameiningin - 01.09.1950, Qupperneq 10
120 Sameiningin Þennan boðskap verða kennarar að kenna, og nemend- ur að nema, hvort sem þeim líkar betur eða ver. Það er engin miskun hjá Magnúsi. Kommúnistar hlýfast ekki við að hegna með ýmsu móti þeim námsmönnum, sem ekki beygja kné fyrir Karli Marx. Ef nemandi sýnir af sér sjálf- stæði nokkurt andlegt, þá á hann víst að missa námsstyrk og önnur hlunnindi, hversu vel sem hann stundar nám sitt að öðru leyti. Rússastjórn hefir litlar mætur á trúuðum námsmönn- um, og sérstaklega ef þeir virðast líklegir til að komast í prestsstöðu. Prestum og prestaefnum gjörir hún lífið svo leitt sem unt er á þessu stígi landsmálanna austur þar, og heíir komið sínum ráðum í það horf, að austan við fljótin Neisse og Oder, þar sem Rússar og Pólverjar hafa nú völd, er völ á aðeins tveim kennimönnum úr hópi mótmælenda; og eru þó enn eftir 175 þúsund mótmælendur á þessu svæði. Þegar bolsevikar treysta sér ekki til að hnekkja ein- hverju því verðmæti, sem aðrir meta mikils, þá snúa þeir við blaðinu, hæla þeim kostagrip á allar lundir — og eigna hann sjálfum sér. Svo var um tónskáldið mikla, Jóhann Sebastian Bach, sem átti tvö hundruð ára dánarafmæli nú í sumar. Bach var einn af fremstu tónskáldum síðari alda; braut- ryðjandi mikill á vegum þeirrar listar eins og kunnugt er. Hann var maður vel kristinn, lúterskur; og hefir víst eng- inn maður látið eftir sig meiri afrek í organmúsik og kirkju- söng. Dánarafmæli Bachs var tignað víða um heim með há- tíðahöldum á þessu sumri, en hvergi líklega betur en á sjálfu Þýzkalandi, þar sem hann fæddist og ól aldur sinn. Var hans víða minst í kirkjum landsins, sem maklegt var. Á Austur-Þýzkalandi var heilmikið um þessi hátíðahöld. Bolsar gátu ekki rönd við reist, og tóku því hitt ráðið, að eigna sér manninn og allan hans kirkjusöng. Bach var framsóknarmaður, sögðu þeir — eins og satt var, vita- skuld — og hefði hann lifað á vorum dögum, „þá hefði hann gengið í þann flokkinn, sem nú er að berjast fyrir friði og betra samkomulagi á meðal þjóðanna“. En þann vitnisburð gefa kommúnistar sjálfum sér. Bach hefði því, að þeirra sögn, verið kommúnisti hefði hann lifað í dag. G. G.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.