Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1950, Qupperneq 14

Sameiningin - 01.09.1950, Qupperneq 14
124 Sameiningin tægi, þar á meðal yfir sex hundruð skóla, mörg barnaheim- ili, sjúkrahús, útgáfufyrirtæki, gripasöfn, og þriflegar eign- ir aðrar. Alt þetta hrifsuðu kommúnistar þegar þeir tóku völd. Af lúterskum lýð í landinu er nú ekki nema þriðjung- ur eftir; gamalt fólk og lasburða flest alt, sem engin fram- búð er í. En hvað varð af hinum? Sumir fórust í ófriðnum; tiltölulega fáir þó; aðrir fóru landflótta; en allan þorra fólksins sem var á blómaskeiði, konur og karla frá 17 ára aldri og upp í 45, hneptu Rússar í þrælkun austur í Síberíu og víðar um veldi sitt. Fátt af því fólki heíir komist heim aftur, og aðeins þeir sem ekki voru lengur vinnufærir. — Svona er mannúðin hjá Bolsevikum. Flestir munu hugsa sér Suður-Ameríku eins og al- kaþóískan landfláka, enda vill páfakirkjan halda heiminum við þá skoðun. Hún hefir í sífellu amast við starfi mótmæl- enda, eins og hún ein ætti alla álfuna. Og þó eru stórir hóp- ar al-heiðins fólks í Suður-Ameríku, og enn stærri hópar ef til vill, sem ekki eru kristnir nema rétt að nafninu til, eða varla það. 1 Argentínu er trúfrelsi helgað með gildum lagastaf, og eins í Brasilíu; en mikið vantar þó á það, að þeim lögum sé vandlega fylgt í verkinu, þar sem mikill þorri lands- fólksins fylgir kaþólskum sið, og sú kirkja má sín mikils á stjórnarvegum, eins og einatt á sér stað um kaþólskar þjóðir. Tala mótmælenda, sem söfnuðum heyra til í Aregntínu, nemur 200 þúsundum. Hafa þeir kirkjur í stórborgum öll- um. Þar eru fjölmargir „anti-clericals"; en svo eru þeir menn kallaðir sem teljast kaþólskir í trú, en hafa ýmugust á ofurvaldi klerkanna. Eru þeir eðlilega hlyntir trúfrelsi. Tala mótmælenda er langhæst í Brasilíu — nokkuð á aðra miljón. Lúterskir menn reka þar öflugt trúboð á meðal Búddamanna frá Asíu, og eins hjá öðrum hópum ókristins fólks. Þeir eiga nú 125 kirkjur í þessu ríki. Um hin ríkin í álfunni herma fregnir lítið að þessu sinni. Þó hafa mótmælendur söfnuði og kirkjur í öllum stærri borgum Chili-ríkis, og eins mun vera um önnur lönd í álfunni. Mótmælendur eru ekki fjölmennir í Suður-Ameríku, það er satt. En — sveitin er vel skipuð og fer vaxandi.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.