Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1950, Page 15

Sameiningin - 01.09.1950, Page 15
Sameiningin 125 Forseti Kirkjufélag’sins, ásamt sóknarpresti og safnaðarnefnd Lundarsafnaðar. Séra Jóhann Friðrickson, Séra Egill H. Fáfnis, W F. Breckman, Mrs. Ólöf Johnson, Mrs. Margrét Björnson, G. A. Breckman, D. J. Lándal. Innsetning á Lundar Enda þótt 1. september bæri upp á virkan, en ekki helgan dag, verður hann vafalaust lengi í minnum hafður meðal þeirra er unna kirkju og kristindómi í Lundarbæ og nágrenni hans. Þann dag rættist draumur safnaðarins þar um að fá fastan prest, en um margra ára skeið hafði hann notið að mestu þjónustu presta er ekki áttu þar heima. Þrátt fyrir alla erfiðleika hefir söfnuðurinn haldið saman, rækt sunnudagaskóla, og ungmenna starf, og endurbætt kirkju sína, sem nú er hið prýðilegasta guðs-hús. Einnig hefir hann nú eignast íbúðarhús fyrir prestinn, og vinnur nú að því að prýða það og endurbæta. En lengi horfði þung- lega um það að söfnuðurinn gæti fengið fasta prest. Úr þessu rættist þó, er söfnuðurinn réðist í að kalla séra Jó- hann Fredriksson, sem um allmörg undanfarin ár hefir átt heima í Deloraine, en hafði áður þjónað Lundar og öðrum söfnuðum kirkjufélagsins, og nú síðast í Churchbridge, en söfnuðurinn þar, hefir einnig kallað hann til nokkurrar þjónustu á ári hverju ásamt Lundar.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.