Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1950, Síða 18

Sameiningin - 01.09.1950, Síða 18
128 Sameiningin Þegar kvöldaði að, fór hópurinn frá Winnipeg heim. Seinna um kvöldið buðu Paines hjónin heim til sín nokkru af starfsfólki heilsuhælisins. Þar var mikið sungið og glatt á hjalla. Hraðskeyti, aðrar kveðjur, blóm og aðrar gjafir bárust að víðsvegar. Ástvinahópurinn sérstaki hélt kyrru fyrir þangað til á mánudag. Sá tími var vel notaður. Systkinahópurinn í heild hafði ekki komið saman í 15 ár. Mikið var skrafað, gamlar endurminningar fengu nýtt líf; stundirnar ómuðu af hjartfólginni gleði. Á laugardaginn átti Guðrún dóttir okkar afmæli. Þetta var sæludagur fyrir hana. Þegar ég kom, um morguninn, inn í stofuna þar sem hljóðfærið er, heyrði ég glymjandi söng. Allur hópurinn var þar að syngja íslenzka sálma. Algjörlega var það af eigin hvöt. Við höfð- um ekki .nefnt það. Þau sungu fjölda íslenzkra sálma, svo skara af íslenzkum ljóðum og þá enska söngva. Jafnvel tengdadóttir okkar frá Vancouver tók nokkurn þátt í ís- lenzka söngnum, og Dr. Paine kom með fiðluna sína og aðstoðaði bæði við íslenzka og enska sönginn. Þegar ég hlýddi á þetta, fanst mér, ísland vera þar hjá mér, með þau dásamlegu verðmæti, sem það hefir eignast og ræktað á vegferð sinni. Þetta alt færði mér unað. Má vera, að frjóangarnir, sem vér leitumst við að vökva, beri nokkurn ávöxt. Á sunnudaginn, 1. júlí, var guðsþjónusta haldin í Brúar-kirkju, í Argylebygð, þar sem séra Eric þjónar. Hann mæltist til þess, að ég kæmi þangað og veitti sér nokkra hjálp; en ég var ekki viss um, að af því gæti orðið; en börnin voru öll með því. Þar átti að vera ferming og altaris- ganga. Við fórum, ég tók nokkurn þátt í guðsþjónustunni, og við vorum öll til altaris. Það var dýrðleg stund. Börnin voru á því, að þar hefði hátíð þessi náð hámarki sínu. Alt voru þetta unaðsstundir, og ekkert skygði á ljóma þeirra. Á engan hátt get ég hugsað mér, að þær hefðu getað verið betri. Guð blessi börnin okkar og aðra góða vini. Þannig er saga mín. Rúnólfur Marteinsson

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.