Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1958, Qupperneq 14

Sameiningin - 01.04.1958, Qupperneq 14
12 Sameiningin þjóða N.-Ameríku. Og sams konar félagsskapur hófst um svipað leyti á Islandi, og sendi hann séra Kjartan Helgason, prófast í Hruna, þá um haustið vestur um haf til þess að vinna að þessum málum. Þótti vel fallið, að fulltrúi íslenzku þjóðarinnar yrði staddur vestra 1920, en þá var liðin hálf öld frá því að vesturfarar Islendinga hófust til Norðurfylkja Bandaríkjanna og Kanada. Séra Kjartan ferðaðist um flest- allar byggðir íslendinga og flutti þar erindi og prédikaði í kirkjunum. Var aðsókn framúrskarandi góð og mikill ár- angur af för hans, sem stóð fram á vor. Drýgst munu hafa orðið áhrifin af persónulegum kynnum, og eignaðist séra Kjartan fjölda vina vestra. Einn þeirra sagði mér, að séra Kjartan hefði gefið sér fræ af íslenzkri fjólu. Setti hann það niður í garðinn sinn, og fjólurnar komu upp og þroskuð- ust vel. Voru aðrir látnir njóta góðs af, og nú eru íslenzku fjólurnar víða vestra. Virðist mér þetta táknrænt um starf séra Kjartans. Honum var ljóst, að bezta vernd Vestur- Islendinga var trú þeirra og tunga, og hagaði starfi sínu eftir því. Var samvinna við beztu menn Vestur-íslendinga farsæl og góð. Hreyfing var hafin báðum megin hafsins, er átti fyrir höndum mikinn vöxt og viðgang. Einn sam- starfsmanna séra Kjartans lýsti honum svo: Þú áttir svo fágætan andans seim, oss enginn ljúfari sótti heim. Án vopna sigraðir Vesturheim og vígðir þér hjörtu landa. — Menn sáu ættjarðarauð hjá þér, hve yndisleg menning lands vors er, þann kærleiksávöxt, er kirkjan ber, og kynjavald göfugs anda. VI. Starf þjóðræknisfélaganna báðum megin hafsins blómg- aðist og óx. Vestur-Islendingar eignuðust stórmerkt tímarit, og til forystunnar völdust ágætir menn, m. a. úr prestastétt Vestur-íslendinga. Og enn komu prestar að heiman til starfa í söfnuðunum, Þorgeir Jónsson, Eyjólfur Melan, og síðast en ekki sízt séra Benjamín Kristjánsson. Hefir hann nú af órofa tryggð við menningu og kristindóm Vestur-íslendinga bjargað frá glatkistunni ómetanlegum verðmætum vestan

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.