Sameiningin - 01.04.1958, Side 16
14
Sameiningin
dr. Sigurgeir biskup mig að vera fulltrúi þjóðkirkju íslands
á afmælisþinginu í Winnipeg- Stóð för mín yfir nokkuð á
annan mánuð. Ferðaðist ég um flestar Islendingabyggðir í
Norður-Ameríku og heimsótti gömlu söfnuðina mína í
Vatnabyggðum, Sask. Komst ég alla leið vestur á Kyrra-
hafsströnd til Vancouver, Blaine og Seattle. Flutti ég alls
staðar erindi eða guðsþjónustur við mjög góða aðsókn og
naut í ríkum mæli bróðurhugar og tryggðar.
VIII.
Eftir heimkomu mína var tekið að vinna að presta-
skiptum yfir hafið, og vildi kirkjustjórnin leggja málinu
lið, enda var kunnugt um nokkra presta vestra, sem voru
mjög fúsir til skiptanna. Einnig var rætt við fáeina hér, og
höfðu þeir hug á skiptunum. Þó gekk nokkuð seint að
koma þeim á. Loks var það ákveðið, að þeir séra Valdimar
Eylands í Winnipeg og séra Eiríkur Brynjólfsson á Útskálum
skiptu á prestsstarfi og hefðu hvorir tveggja með fjölskyldur
sínar. Urðu skiptin sumarið 1947 og stóðu í eitt ár. Þau
tókust vel, eins og vænta mátti, því að áhugasamir önd-
vegisklerkar áttu í hlut, er leystu störfin prýðilega af hendi
og til almennrar ánægju í söfnuðunum.
Annað, sem ýmsum lék hugur á, var það, að ungir menn
að vestan stunduðu hér nám við guðfræðideildina. Haustið
1945 kom Emil Guðmundsson frá Lundar og stundaði hann
síðan lengi nám við deildina. Er hann nú orðinn prestur í
Bandaríkjunum. Nokkru seinna, 1953, kom til náms séra
Eric Sigmar, sonur dr. Haralds Sigmars, fyrrv. Kirkjufélags-
forseta, ásamt konu sinni. Naut hann nokkurs styrks, en
jafnframt unnu hjónin fyrir sér með enskukennslu. Séra
Eric er nú forseti Kirkjufélagsins, eins og kunnugt er. Nú
er hér kominn séra Harald Sigmar, bróðir hans, með konu
sína og fjögur börn- Er hann kennari við guðfræðideildina í
stað Þóris Kr. Þórðarsonar prófessors, sem nú er kennari í
guðfræði í Chicago.
Loks er á síðustu árum aftur endurvakin sagan um unga
presta eða guðfræðikandídata, sem taka vígslu og hefja
prestsstörf vestra, en hverfa svo aftur til íslands innan
skamms tíma. Má þar til nefna séra Robert Jack og séra
Braga Friðriksson.