Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1946, Page 8

Sameiningin - 01.03.1946, Page 8
38 Drottins af þessum ófögnuði, þá greip óttinn Annas. Honum sýndist eflaust að hagsmunaleg velferð sín væri í voða. Og þá sótti hann það þegar af ofurkappi að Kristur yrði ráðinn af dögum. Það er eftirtektarvert að Jesús er leiddur í höll Annasar þegar hann er gripinn höndum, því ekki var hann þá æðsti prestur. En það hefir verið svo tilgetið, af ýmsu sem sagan hermir, að Annas muni hafa náð tökum á því að hafa áhrif á yfirvöld og þá sem í málum dæmdu. Verður það því auðsætt er um þennan þátt sögunnar er hugsað, óréttlátt ráðabrugg og sviksamleg afstaða manna sem með völdin fóru, átti líka sinn þátt í því að krossfesta meistarann. Ekki vildi alþýðan eða hinar undirokuðu stéttir þess mannfélags sem hér umræðir, standa á móti Kristi, og berjast móti honum. Það fólk hlaut að hafa komið auga á það að í honum áttu þeir þann leiðtoga og vin, sem enginn jafnaðist á við. Þetta kemur líka greinilega í ljós af því hve 'hræddir leiðtogarnir voru við alþýðuna þegar þeir hófu sínar grimmu árásir gegn Kristi. Og afstöðu alþýðunnar til Krists má og marka af þeim frábærlega góðu móttökum, sem hún veitti honum, þegar hann gjörði sína konunglegu innreið til Síonsborgar. Því sorglegra verður þá að hugsa um það hve ægilega fljótt veður breittist í lofti. Maður hrjrggist sárlega útaf þeim sorglega viðburði á föstudaginn langa, er leiðtogarnir höfðu afvegaleitt lýðinn, svo og æst hann gegn sínum bezta vini, að lýðurinn hrópaði í hugsunar- lausri og fáránlegri grimmd, til Pílatusar : “Krossfestu, krossfestu hann.” Hér birtist því ein orsökin enn, sem átti sinn þátt í krossfesting meistarans,-—Ósjálfstæði og ístöðu leysi alþýðunnar. Mér virðist að vér hljótum að vera mjög kvíðandi útaf þessum hlutum sem virðast hafa átt sinn mikla þátt í krossfesting Krists, því að þær sömu staðreyndir sem þá orsökuðu krossfestinguna, eru svo ákaflega ábærilegar 1. heiminum enn þann dag í dag. Þær eru altaf að loga uppúr á ýmsum stöðum og tímum. Það hefir sífelt verið talað mikið um faríseaháttinn. Hefir í því efni altaf verið vegið mest að kirkjunni. Hún og meðlimir hennar hafa sífelt verið sökuð um faríseahátt. Kannské þær ásakanir hafi stundum haft eitthvað til síns máls. En áreiðanlega hefir mátt finna faríseaháttinn mikið víðar en í kirkjunni. En mér er spurn hvort að önnur ill og

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.