Sameiningin - 01.03.1946, Síða 14
44
Hann sýndi öll merki þess, hvílíkar skelfingar hann hafðí
liðið fyrir slæma fæðu og fæðuskort. Hann var magur og
visinn. Hann hafði þrisvar verið settur í fangelsi. Bækur
hans höfðu verið eyðilagðar. Sjónin á auganu, sem heilt
var, hefir minkað. Hann á nú mjög bágt með, að lesa
nokkuð. Það var átakanlegt að sjá blessaðan gamla mann-
inn í þessu ástandi.. En þessi tilfinning hvarf að miklu
leyti þegar hann hreyfði sig og þegar hann fór að tala. Þá
virtist lífið koma, hugsunin skýr, orðin vingjarnleg og
skáldleg, alt viðmótið unaðslegt.
“Hefðuð þið ánægju af því á skipinu, þar sem þú starfar,
að heyra “oratoriu” Handels, “Messias,” sungna?” spurði
Kagawa. Hann sagði að 300 Japanítar væru að æfa það
óviðjafnanlega hljómlistarverk, á ensku. Já, herprestur-
inn gat ekki hugsað sér neitt yndislegra en það. Kagawa
var að koma þessu þrekvirki í framkvæmd til þess að veita
Bandaríkja hermönnunum ánægju með þessum dýrðlega
söng. Svona var andi þessa manns gagnvart þeim sem
höfðu unnið sigur yfir þjóðinni hans, og skortir hann þó
enga sanna elsku gagnvart sínu eigin fólki.
Herpresturinn lagði fyrir hann ýmsar spurningar, en
hér verður ekki skýrt nema frá sumum. Sem svar uppá
spurningu, kannaðist hann við að kirkjusókn hefði hnignað
stórkostlega; en svo bætti hann við: “Þó aðsóknin sé minni
en áður, er samt bandalag hinna fáu sem kristnir eru, enn
andlegra og sterkara en áður. Kristindómur hér er nú eins
og frjóangi, sem er að brjótast gegnum jörðina og skelina,
sem er yfir henni.”
“Heldur þú að kristindómurinn eigi góða framtíð í
Japan?” var hann spurður. “Það er undir okkur komið,”
svaraði hann. “Það þarf meira en prédikanir til að snúa
fólkinu til kristinnar trúar. Eftir því sem oss bezt er unt,
þarf að seðja hina hungruðu og klæða hina nöktu og týnast
sjálfur í þeirra velferð.”
Ætli fólk í Japan vildi þiggja gjafir frá Bandaríkjunum
til þess að endurreisa kirkjurnar sem eyðilagðar voru af
sprengjum?” var önnur spurning. Því svaraði Kagawa
með þessum orðum: “Andleg bygging verður að koma á
undan líkamlegum byggingum. Þag sem mér nú liggur
mest á hjarta er að byggja upp sannarlegt andlegt líf með
þjóðinni, og það frá grunni.”
Hann mintist með fám orðum á hið frábærlega erfiða-