Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1946, Side 3

Sameiningin - 01.04.1946, Side 3
H>atmtmngtn Mánaöarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga gefiÖ út af hinu ev. lút. kirkjufélagi Isl. í Vesturheimi. Ritstjóri: Séra Siguröur Ólafsson, Box 701, Selkirk, Man. Féhiröir: Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave., Winnipeg. 61. ÁRG. WINNIPEG, MAÍtZ^1946 Nr. 4 “Hann er upprisinn, hann er ekki hér” Hver sem ástvini syrgir finnur hugsvölun í því að mega hlynna að líkamsleifum þess sem látinn er og þráir að mega í einrúmi tjá sínar hinztu kveðjur. Sú tilíinning var orsök þess að konurnar þrjár hófu göngu sína, “mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar” til grafarinnar, sem höggin var í klett. Þær fóru þangað til að smyrja líkama meistarans sem þær elskuðu. — Hljóðar og harmþrungnar fara þær leiðar sinnar. Dagsbrúnin yfir Olíufjallinu er að færast upp á hið dimma næturhvel. Hversu langan veg þær urðu að ganga, er manni óljóst, því ókunnugt er hvar þær dvöldu í borginni. Þegar þær koma til grafarinnar, þá er sólin runnin upp. Þá ljómar heiminum í andlegum skilningi nýr dagur. Þær bera kvíðboga fyrir hvernig þær fái komist að líkinu. Þær hafa ekki afl til að velta steininum frá gröfinni, hann var of stór til þess. — Þegar áfangastaðnum er náð, sjá þær óvænta og dýrðlega sýn: Steininum hefur verið velt frá; engill drottins bíður þeirra og færir þeim óvænta gleð^fregn: “Hann, sem þér leitið aö er ekki hér, hann er upprisinn.” — Konurnar staðnæmdust ekki við gröfina — því skildu þær tefja þar, fyrst hann sem þær leituðu að

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.