Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1946, Page 10

Sameiningin - 01.04.1946, Page 10
56 kærleikann, hið fegursta dæmi um dygðir og heilagt líf. Allir menn þrá það að sjá Guð, fá fullvissu um náð hans og miskunn. Öll hin mikla synd mannanna og vansæla knýr þá til að leita hjálpar í bágindum sínum. Allar líðandi og deyjandi manneskjur, allir einstæðingar, allar daprar og grátandi sálir, þrá að sjá sól kærleikans, og ‘hún birtist þeim svo dásamlega í Kristi, og aldrei eins heit og fögur, og ein- mitt í viðburðum föstunnar löngu. Allur kærleikur Guðs til mannanna, öll hans fyrirgefandi náð sést í þessum sak- lausa, þyrnum krýnda, húðstrýkta og dæma manni. Það er kærleikurinn sem er krafturinn í öllu lífi hans, og sem einnig gerir hann bjartsýnan og hugumstóran við aðkomu dauðans. Orðin hans á krossinum bera vott um elskuna í hjarta hans, ásjóna hans, hönd hans og hreyfingar, alt talar það máli kærleikans. Rödd hans er bergmál af kærleiks- ríkri rödd föðursins sem skilur bezt tregan og tárin, og vill í þessari kærleiksfórn sonarins leiða alla menn til þekkingar á sjálfum sér, föðurnum sem elskar alt og fyrirgefur alt, þeim er þess biðja. Já, sjáið manninn, segjum vér sérstak- lega á föstunni. í honum sjáum vér hina eilífu baráttu milli dags og nætur, haturs og kærleika, m'illi þeirra er banaspjót bera og hinna er friðmál flytja. í honum sjáum vér sigur hins góða, og kærleika Guðs á bak við mannlífs- föstuna löngu. En það er ekki nóg aðeins að sjá hann; vér verðum að trúa honum, treysta á hann í lífi og dauða, og leitast við að ganga á þeim vegi lífsins sem hann boðaði og sjálfur gekk. Takist oss þannig ^ð ganga fram með Ijós trúarinnar í annari hendi, og vonarinnar í hinni, og með eld kærleikans í hjörtum vorum; þá þurfum vér engu að kvíða þrátt fyrir stormana, helið og hjúpinn sem bíður vor allra-— Því fyrir handan alt það stendur Kristur með framréttar hendur og boðar oss lausn frá syndum, og líf í dauða. Lutheran World Action eftir H. Sigmar Um þessar mundir eru stórkostleg fundarhöld í ýmsum borgum í Canada og Bandaríkjunum, til að brýna fyrir fólki þörfina að leggja sem allra rnest fram til liðsemdar

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.