Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1936, Síða 10

Sameiningin - 01.03.1936, Síða 10
44 annað. Það er einmitt mergurinn málsins í þessu ávarpi séra Jóns, að trúarþörfin, þörfin á himneskum föður og frelsara, sé œðsta og dýpsta þörf mannhjartans á öllum tím- um; að stundleg velmegun geti aldrei rýmt þeirri þörf í hurtu, og enginn hlutur úr henni bætt, nema kristin trú, sönn og lifandi. Svo langt er frá því, að hann vilji binda kirkju og kristindóm á klafa heimsmálanna. Og hver er þá skoðun höfundarins á sjálfum kristindóm- inum, þessari nauðsyn allra nauðsynja? Er nokkuð þar, sem fylgismenn hans þurfi nú að fella hurt eða lagfæra, eftir fimtíu ár? Ekki þarf að leiða rök að því, að séra Jón Bjarnason hafi verið sanntrúaður kristinn maður, að hann hafi tignað meistarann og trúað honuin fyrir örlögum sálar sinnar eins og einlægir trúmenn í kirkju Ivrists hafa gjört frá öndverðu. Það kemur mæta vel í ljós í orðum hans hér eins og í öllu, sem hann skrifaði. Og samþykkur var hann auðvitað skilningi lútersku kirkjunnar á hjartamáli krist- innar trúar. En þó er athugavert, að í þessum trúhvatningar- orðum hér, hve alvörumikil og ákveðin sem þau eru, er ekki vikið með einu orði að kenningasafni kirkjunnar. Enga grein í þeim fræðum vitnar hann í eða minnist á, hvorki lúterska eða nokkra aðra. Og voru þó orðin rituð löngu áður en hin einhliða kenning Harnacks um djúpið mikla milli trúar og guðfræði fékk frægð og fylgi á meðal fslendinga. Harnacks-stefnunni varðist séra Jón af alefli, sem kunn- ugt er; euda var hann aldrei modernisti, eins og það orð er venjulega skihð. Það var af öðrum toga spunnið fyrir hon- um að leggja svona litla áherzlu á fræðakerfin. En honum var það brýnast allra mála, að fólkið yrði leitt burt frá dauðu forminu, hvort heldur var í kenningum eða helgisiðum; burt frá öllu því, sem hann kallaði vanakristindóm, að raunhæfri og lifandi trúarreynslu. Fyrir því forðast hann vanahelgaða framsetningu, hér eins og endranær, þegar hann flytur er- indi trúarinnar fyrir almenningi. Hver vill nú segja skilið við þessi stefnuatriði, eitt eða fleira? Ef slíkir menn eru til í vorum félagsskap, þá segi þeir til sín. En sá sem þetla ritar telur sig nú, eins og áður, fullræmdan af að kallast fylgismaður séra Jóns Bjarnasonar og að hakla fram í það horfið sem hann markaði fyrir í þess- ari fyrstu grein blaðsins—að leggja gott til þjóðmálanna eftir megni, en gleyma þó ekki því, að erindi Jesú Krists er til

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.