Sameiningin - 01.03.1936, Page 13
47
Ritstjóri ungling-adeildar Sameining-
Ritstjóri 19 32—19 3 3 arinnar í mörg ár.
inn og vaknaðr er ti! fyllstrar meðvitundar um andans hulda
eðli. '
Til þess nú hin nýju trúarbrögð útrými kristindóminum,
þurfa þau að hafa meira að bjóða í þessu tilliti. Fulllcomnari
guðsþekking og fullkomnari mannþekking verða þau að hafa
til hrunns að hera. Þau verða að opinbera mönnunum meira,
en ekki minna um guð, og þau verða að kenna manninum að
þekkja sitt eigið eðli betr en kristindómrinn hef'r gjört.
Kristindómrinn hefir snúið sér að þeirri hlið af með-
vitundarlífi mannsins, sem vér köllum samvizku. Valdið,
sem hann hefir yfir hugum manna og hjörtum, er að mjög
miklu leyti innifalið í því afli, sem hann hefir haft til að
vekja samvizkur manna, sannl'æra þá um synd, kæfa hroka
hins eigingjarna vilja, kenna manninum að krjúpa á kné í
auðmýkt og biðja um miskunn og líkn. Hvernig svo sem
þau trúarbrögð að öðru leyti kunna að verða vaxin, sem ætla
sér að útrýma kristindóminum,—ef þeim á að heppnast,
veðra þau að eiga sterkara afl til að vekja samvizkur manna;
þeim verðr að takast betr að sannfæra heiminn um synd,
en kristindóminum hefir íekist. Hið lakasta í fari mannsins
verða þau að þekkja betr, til þess í guðs nafni að geta sldpað
því að standa á fætr og gjöra skyldu sina. Eitt mega menn
vera sannfærðir um, og það er þetta: Ef ný trúarhrögð eiga
að koma í stað kristindómsins, gjöra þau meiri, en ekki
minni kröfur til mannanna. Fullkomnunarhugmyndin, sem
þau halda á lofti fyrir manninum, hlýtur að verða hærri, en
ekki lægri. Það verðr ekki léttara þá að gjöra skyldu sína
en nú. Þau gjöra mönnunum naumast hægra fyrir með að