Sameiningin - 01.04.1940, Blaðsíða 14
60
hat'a sent skorinorð mótmæli til forsetans, hver á fætur
öðrum. Lútersku félögin, öll eða l'lest, hafa lagt þar orð i
helg; l)aptistar sömuleiðis; adventistar, presbýterar, meþod-
istar og fleiri kirkjufélög. Málið er ennþá rætt af miklu
kappi í kirkjublöðum landsins.
—G. G.
“Sigurhetjan, Jesús minn.”
(Framh.)
Á 19. öldinni urðu hraðskreiðar og stórstígar franifarir
á sviði náttúruvísindanna. Með þvi brauzt til valda vísinda-
andinn í almennum skilningi, sem alt vill flokka og allar
greinir mannlegrar þekkingar rannsaka. Sá andi fór eldi
um ÖIl lönd hugsunar og athafna. Hann sópaði burt hégilj-
um, hindurvitnum og hjátrú. Hann lagði traustar undir-
stöður margvíslegra rannsókna. Það mætti segja, að hvorl
sem menn í einstökum atriðum hefðu fundið sannleikann
eða ekki og hvað mikið sem þyrfti síðar að breyta, væru
menn komnir á rekspöl í sannleiksleitinni, og að mönnum
væri óhætt að halda áfram á þessari leið að leita hins rétta.
Að með þessu hafi verið unnið frábærlega mikið og gott
verk dettur engum heilvita manni i hug: að neita. Það er
ennfremur aðdáunarvert, að fjöldi visindamanna hefir á
ýmsum timum fórnað afarmiklu, stundum lífi sínu, í leit-
inni eftir því sem gæti orðið mannkyninu til blessunar.
Alt mannfólk á jörðu er í þakklætisskuld við vísindin.
Var þá ekki sjálfsagt að kristindómurinn væri ásamt
öllu öðru, rannsakaður. Það mátti jafnvel búast við því að
miskunnarlaus, dynjandi kritík væri látin yfir hann ganga.
Hvort sem mönnum líkaði þetta betur eða ver varð þetta
ekki umflúið. Ekki heldur var nokkur minsta ástæða til
að hafa á inóti þessu ef um einlæga sannleiksleit var að ræða.
Milli sviga má segja það að kristindómurinn er trúarbrögð,
og þar koma til greina andleg öfl eins og lotning, aðdáun,
kærleikur, ásamt mörgu öðru, sem háð eru öðru lögmáli en
náttúruvísindanna. En það sem rannsakað verður á réttan
vísindalegan hátt, í sambandi við boðskap kristindómsins
er opið til sjálfsagðrar og óhindraðrar rannsóknar.
Hver varð þá árangurinn af þessari rannsókn, sem beitt
var við kristindóminn? Vísindamenn voru ófullkomnir eins
og aðrir menn. Þeir voru jafnvel stundum hrokafullir og