Sameiningin - 01.04.1940, Blaðsíða 17
63
Sú þjóð heimsins, sem á einna mest land af öllum
þjóðum biður Finnana að geí'a sér land og þegar það er
ekki í té er ráðist á þá með öllum þeim morðvopnum, sem
þjóð 50 sinnum stærri getur sent þeim á hendur i lofti og
á landi. Eldi og brennisteini rignir ekki einungis á finska
hermenn, heldur á finskar borgir, þorp, kirkjur, skóla,
konur og börn svo að segja um alt landið. Satan hefir þar
orðið laus.
Að þessu athuguðu verður það ljóst, að Jesús Kristur
hefri verið forsmáður og fótumtroðinn í sumum löndum
heimsins; en þeir, sem athuga versið í Opinberunarbókinni
(20:7) sjá að þar er sagt, að Satan verði leystur aðeins
stuttan tíma. Þó alt hafi verið gjört á Rússlandi, af
stjórnarvöldunum, til að drepa kristindóminn, og þó þar sé
alt gjört til að ala upp æskulýð sem sé algjörlega guðlaus,
er samt ekki víst hver verða leikslok, og víst er um það,
að ekki hafa öll kné þar í landi beygt sig fyrir Baal. í
Þýzkalandi mun það sannleikur, að fjölda margir, sem orðið
hafa fyrir erfiðleikum sökum fastheldni við lúterskan krist-
indóm, hafa fengið trúareld í sál sína einmitt út af erfið-
leikunum.
Það lifir sú von í brjóstum sann-kristinna manna að
Jesús Kristur eigi eftir að verða hafinn til meiri dýrðar á
jörðu en nokkru sinni í liðinni tíð.
Eg ann þér, “sigurhetjan, Jesús minn.”
—R. M.
Hvaðanæfa
Meðlimatala katólsku kirkjunnar í löndum Japana
nemur nú tvö hundruð áttatíu og þrem þúsundum. Eftir
síðustu skýrslum hefir sú kirkja rekið kristniboð sitt með
óvenjulega miklum árangri þar um slóðir á þessu síðasta
ári, þrátt fyrir ófriðinn; hálft þrettánda þúsund sálir tóku
katólska trú — tveir þriðjungar af þeirri tölu í Kóreu, hitt
á Japanseyjum.
+ + >
Aftökum án dóms og laga — lynchings — hefir nú
farið fækkandi um nokkur ár í Bandaríkjunum. Tuskegee
Institute, sem safnar upplýsingum um þessi hermdarverk,