Sameiningin - 01.03.1941, Side 3
$ametmn#tn.
.1 íánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga
gejxð út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi
Ritstjórar:
Séra Kristinn K. Olafson, 3047 W. 72 St., Seattle, Wash., U.S.A.
Séra Guttormur Guttormsson, Minneota, Minn., U.S.A.
Séra Rúnólfur Marteinsson, 493 Lipton St., Winnipeg.
Féhirðir: Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
56. ÁRG. WINNIPEG, MARZ, 1941 Nr. 3
Fyrála orð Kriáts á krossinum
ó, kæri i'aðir, fyrirgef,
ö. fyrirgef ai' náö,
þeim sem í blindni búa mér
nú bitra kvöl og háð.
Ó, faðir minn, þeim fyrirgef,
þólt fremji glapráð sitt
og haldi að viljavonzkan sín
sé vilja-ráðið þitt.
Svo bað hann. sem þeir börðu fyrst
og bundu svo á Iré,
og nadda létu nísta hann,
og napurt guldu spé.
Hann þeirra kalda ei heyrði háð,
ei heift í sinni fann.
Sá aðeins þeirra eymd og neyð,
því ást í hjarta brann.
Var aðeins maður þessi, þú,
sem þannig hrópa réð?
Er eðli mannsins þetta, þú,
er þrælar fá hann spéð?
Er siður hans að gjalda gull
og gefa hjartablóð,
ef honum hatursgjald er greitt
og galliblandið hnjóð?