Sameiningin - 01.03.1941, Side 9
39
mikið i húfi. Ef hérlendur kirkjulýSur hafnaði nú þessu
tækifæri til að sýna af scr manndóni og trygð og trúaráhuga,
])á kæmist hann ekki hjá afleiðingunni; hann mnndi dæma
sjálfan sig í kotungsskap og andlega deyfð og bíða tjón á
sál sinni.
Hér er þá eitt dæmi til sönnunar því, sem tekið var
fram í byrjun þessa máls: að það er undir okkur sjálfum
komið, kristnu fólki, hvort þessi þrauta-tíð, sem nú gengur
yfir verði kirkjunni til falls eða viðreisnar.
(Meira)
G. G.
Krossinn
Virðingu ber eg fyrir því hjá kaþólskum að alstaðar
hafa þeir krossinn hjá sér sem merki sitt, jafnvel þó hjátrú
blandist þar saman við, eins og á sér sérstalega stað i sam-
bandi við róðukrossinn, krúsifixið. Enginn veit livað l>ak
við kann að vera af sannri trú á náðarmátt hins krossfesta
Drottins. Æðimikið göfugri er þó hjátrú sú heldur en hjá-
trúin á mátt skeifunnar til þess að verja fvrir óhöppum,
sem nokkrir landar hafa látið flækjast í, eða að kaffigroms
geti sagt fyrir forlög mann-a. Og sannarlega ber eg nreiri virð-
ing fyrir hjátrúnni, sem tengd er við kross Drottins, heldur
en fyrir ótrúnni, svo eg ekki segi hjátrúnni, þeirra sem eink-
isvirða krossinn, af því að kross hins krossfesta Drottins
Jesú og hann sjálfur sem hinn krossfesti hjálpræðis-konung-
ur mannanna, er þeim ekki neitt.
Hvenær krossinn byrjaði að vera merki kristninnar,
veit eg ekki, en öndverðlega virðist hann hafa verið orðinn
það. Bendir lil þess sýnin, sem Konstantín keisari á að
hafa haft, samkvæmt hans eigin sögusögn, snemma á 4. öld.
Sá hann krossinn Ijóma á himni, og' letrið þetta: Með þessa
merki skalt þú sigra. En ekki aðeins i kirkju Krists hefir
krossinn verið merki hennar, heldur líka í ríkisfánum
sumra þjóða hefir krossinn verið merkið. Eins og við vit-
um er krossinn dýrlega merkið í íslenzka ríkisfánanum
nýja. íslenzka þjóðin játar sig kristna með fána sinum og
að hún trúi á hinn krossfesta Drottin, eins og Japansmenn
t. d. með sólina sem merki í fána sínum játa að þeir trúi á
sólgyðjuna og séu hennar ættar. Nefna má það, að við
kristnir íslendingar syngjum um krossinn sem merki kristn-
innar: