Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1941, Síða 18

Sameiningin - 01.03.1941, Síða 18
48 kirkjufclagsins í Uniletl Lutheran Church. Höfundurinn, Jóhanna F. Sigbjörnson, er uppalin nálægt Leslie í Saskat- chewan, og útskrifaðist fyrir þrem árum i hjúkrunarfræði frá Almenna spitaíanum í Winnipeg. Foreldrar hennar eru hjónin góðkunnu, Sigurður Sigbjörnsson og Rannveig K. G. Sigbjörnsson, sem flestir þekkja, þeir er lesa íslenzku blöðin. Áður hafa birzt kvæði eftir Jóhönnu i Winnipeg Free Press og öðrum blöðum norðan línunnar. Og nú í haust voru tvö af Ijóðum hennar prentuð í smákvæðasafni, Golden Verse Anthology, sem gefið var út suður í Fíladelfíu. —- Kvæðið, sem hér birtist, er ort að tilmælum frá leiðandi jnanni lúterskum, sem fagnaði mjög yfir úrslitum inngöngu- málsins. “Hún Jóhanna mín skilur það,” skrifar móðir hennar, “að eg verð alt af að einhverju leyti austur-íslenzk, en hún vitanlega vestur-íslenzk. Hún veit, að það sem íslenzkt er, getur ekki dáið sársaukalaust fyrir mig, og að sá sársauki getur aldrei að fullu orðið hennar. Því getur hún lofað Guð af öllu hjarta fyrir það, sem orðið er; og kristin kirkja heimtar af mér, að eg taki undir.” G. G. Velbúinn, góðlegur maður var á ferð eftir einu helzta stræti San Francisco-borgar, Market Street. Skamt fram- undan, á götuhorni, stóð fjölskylda, maður, kona og þrjú börn: fjögra ára, hálfs þriðja árs og fl mánaða. Konan hélt á yngsta barninu, en hin stóðu hjá henni. Þau voru öll fátælclega l)úin og fólkið sem sá þau gjörði gys að þeim. Þau voru vandræðaleg á að líta. Vel búni maðurinn lcom til þeirra og grenslaðist eftir ástæðum þeirra. Þau könnuð- ust við að þau hefðu komið mest gangandi, nokkra leið, en ætluðu til bæjar, sem heitir Riverside. Þau höfðu enga peninga og börnin voru orðin nokkuð þreytt. Vel búni maðurinn fór með þau í fagurbúna skrifstofu, og í stórum stól sofnaði drengurinn, sem var á þriðja árinu. Velgjörða- maðurinn gekk að símanum, og gjörði nokkrar ráðstafanir. ínnan skamms kom bíll, sem flutti þau á gott gistihús. Þar voru þau í góðu yfirlæti næstu nótt. Svo voru þeim ölluni gefnir farseðlar til Riverside og nokkur fjárupphæð þeim til aðstoðar meðan þau væru þar að finna fótum sínum forráð. Maðurinn sem alt þetta gjörði var borgarstjórinn i San Francisco. R. M.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.