Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1941, Síða 10

Sameiningin - 01.03.1941, Síða 10
40 HAtt skal merkið hefja: Helgan Jesú kross. Og það er skilyrði fyrir sigri kirkjunnar. Að draga niður merkið er vottur um niðurlag, enda vill l'ylg'ja þess verða afneitun krossins og um leið afneitun hjartamáls fagnaðarerindisins. Hvað mikils virði krossinn Krists var postulanum Páli sézt bezt á því, hvað hann segir við söfnuðinn í Korinlu í fyrra bréfinu, öðrum kapítula, öðru versi: Eg ásetti mér að vita ekkert á meðal yðar, nema Jesúm Krist og hann kross- festan. i kap. næsta á undan segir hann: Orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss, sem hólpnir verðum, er það kraftur Guðs (v. 18). Ennfremur á sama stað (v. 23): Vér prédikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli, en heið- ingjum heimsku. Skyldi það vera fjarri að segja hið sama um suma á meðal vor? Á það má minna að á sama stað segir hann líka: Gyðingar heimta tákn og Grikkir leita að spcki — speki heimsins, en hafna speki Guðs í Krisli. Það er vitanlega gott að geta orðið spekingur á mannlega vísu, ef ofvizkulegur hroki gerir það ekki að verkum, að speki manns er sett ofar speki Guðs og henni því hafnað. Til þess nú að árétta það hvað mikils umvert það sé að Jesús Kristur og hann krossfestur sé prédikaður, þá segir hann að Kristur sé hinum kölluðu, þeim sem tekið hafa á móti orði krossins, hæði Gyðingum og Grikkjum, kraftur Guðs og speki Guðs. Og þetta voru ekki hjá postulanum stór orð tóm. Líf hans sýndi það. Hann hafði sjálfur reynt þetta. Honum var það sannleikur veruleikans og lífsins. Og ekki honum aðeins þessi tífsins sannleikur, heldur líka öllum þeim, sem Kristi tilheyra, ])ó á mismunandi stigi samkvæmt mæli trúarþroskans og lífsþroskans. Þessvegna gat hann sagt: Það sé fjarri mér að hrósa mér, nema af krossi Drottins vors Jesú Krists, fyrir hvern heimurinn er mér krossfestur, og cg heiminum (Gal. 6, 14). Og þar sem nú krossinn er honum svona mikils virði, þá er ekki furða þó hann segi við söfnuðinn í Filippi eins sterklega og honum er unt þetta: Margir breyta — og eg hefi oft sagt yður það og nú segi eg það jafnvel grátandi — eins og óvinir kross Krists; afdrif þeirra eru glötun (3, 18. 19). Þannig sjáum við hvað mikils virði krossinn var postulanum og hvaða lífsgildi hann átti fvrir alla samkvæmt vitnisburði hans. Og hann tók út sárt, heyrum við, þegar meðlimir safnaðti frá-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.