Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1941, Síða 8

Sameiningin - 01.03.1941, Síða 8
38 örfá dæmi. I>að starf, sem liggur eftir Norðurálfutrúboðið á þessum svæðum og víða annars staðar, getur víst enginn maður metið að verðugu. Og þá má ekki gleyma hinu mikla starfi Þjóðverja og Hollendin-ga á Indlandseyjunum. Hvergi nokursstaðar í víðri veröld hefir kristniboðið haft meiri árangur á síðari árum, heldur en þar. Mótmælendur í Japan, Kína, Kóreu, á Filippseyjum og í öllum öðrum Asíulöndum fyrir austan Burma og Indland, allir til samans, eru ekki eins fjölmennir eins og kristna fólkið á þessum eyjum. Þar eru þrjú kirkjufélög, sem telja um eða yfir fjögur hundruð og fimtíu þúsund meðlimi hvert. Mega því allir sjá það, að hér er engin dauðvona viðleitni að biðja um stundar-grið. Kirkjurnar hér í Vesturheimi hafa tekið að sér að safna þessu styrktarfé, eins og áður var að vikið. Þær hafa skift verkum með sér, og fer skiftingin eftir kirkjudeildum, eðli- lega; lúterskir menn, til dæmis, líta eftir lúterska trúboð- inu. En þó er þessi skifting alls ekki fastbundin. Allar kirkjudeiidirnar hafa samtök með sér um þett'a verk; þær útbýta fénu eftir þörf, en ekki eftir flokkaskiftingu eða j)jóðerni. Lútersku félögin tóku höndum saman um sinn þátt í hjálpinni, sem sagt. Hafa þau skipað nefnd, sem annast fjársöfnunina; og hún leitar nú til allra trúbræðra vorra hér vestan hafs eftir gjöfum og liðsinni. Ef svo illa skyldi nú fara. að hjálparféð — þessi hálf önnur miljón, eða þrjú til fjögur cent á hvern safnaðarlim árlega — næðist ekki saman í Vesturheimi, þá yrði skaðinn ómetanlegur, sem af því mundi hlotnast, bæði fyrir kristni- boðið, og ekki síður fyrir hérlent kirkjulíf. Þessar mun- aðarlausu missiónir mundu fara í niðurníðslu víðast hvar, og sumar hverfa úr sögunni. Söfnuðir eru til á vegum kristniboðsins, vitaskuld, nógu þroskaðir og nógu sjálf- stæðir til að bjargast á eigin býti. En hinir eru miklu fleiri, sem enn eru smáir og veikir fyrir; þeir þurfa stuðn- ing. bæði andlegan og efnalegan, til að lifa. Bregðist hjálp. in, þá stendur það fólk uppi berskjaldað, varnarlaust, um- kringt af heiðingjalýð og heiðnu þjóðlífi. Allir geta skilið, hver afleiðingin mundi verða á fáum árum. Starfið mundi þokast langar leiðir aftur á bak og þurfa mörg ár lil að ná sér eftir þann ósigur. En kirkjan hér heima fyrir, mundi hún bíða nokkurn slcaða? Vissúlega. Að hafna dreng- skapnum er aldrei gæfuvegur. Hjálpin er auðveld, en

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.