Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1941, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.03.1941, Blaðsíða 11
41 hverfðust og urðu “óvinir lcross Krists,” kærleikurinn til þeirra og meðvitundin um ófarir þeirra olli sársaukanum. Hefir það valdið okluir slíks sársauka, að vita til þess að fólk okkar þjóðar hafa gjörst fráhverft krossi Krists, og að unnið hefir verið að því að sem flestir mættu verða það? Nú eigum við vitnisburð eins okkar merkasta manns, Hallgríms Péturssonar, samhljóða vitnisburði postulans. Hásöngur hans um krossinn Krists hefir um langan aldur snortið hjörtu allra kristinna íslendinga og verið þeim dýrmæt eign, sem tengt hefir hjörtu margra sterkari lífs- tengslum við hinn krossfesta Jesúm Ivrist og varið marga sál frá því að láta skeika frá honum þrátt fyrir andblástur æstan úr ýmsum áttum. Talið er af mönnum kunnugum að Hallgríms Píslarsálmar hafi verið þjóðinni, á erfiðustu tímum hennar, styrkur lífs og sigurafl. Við það er kannast enn að þjóðin eigi í sálmum þessum ómetanlegan fjársjóð, og minning Hallgríms í heiðri höfð og það á sérstakan og mjög viðeigandi hátt, með því að reisa honum kirkju sem minnis- varða. Er slíkt einsdæmi á íslandi að því eg veit, og sýnir í hvílíkum hávegum minning hans er höfð, þótt, að því er mér virðist, prédikun Krists hins krossfesta skipi ekki það öndvegi, sem hún átti hjá Hallgrími Péturssyni. Eg vil nú láta hann syngja. Og er ósk mín og bæn, að söngurinn hans mætti enn snerta til lífs hjörtu margra, helzt allra, á meðal okkar. Hann söng og við höfum verið að syngja með honum: Gefðu að móðurmálið mitt, minn Drottinn, þess eg beiði, frá allri villu ldárt og kvitt krossins orð ]>itt útbreiði. Æ, að svo mætti verða hér ineð okkur Vestmönnum, eins lengi og íslenzk tunga er töluð. Og eins þó um tungu sé skift. Hallgrímur Pétursson vill vera hjá krossinum Krists. Þar á hann heima og þar er hann meðan hann svngur sálm- ana sína. Þar kviknar og lifir söngurinn hans til dýrðar honum, sem krossfestur hafði verið. Þar nær hann sínum hæstu tónum. Kem eg nú þínum krossi að, kannastu, Jesú minn, við það;

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.