Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1942, Síða 13

Sameiningin - 01.04.1942, Síða 13
59 garð Berggrevs biskups fyrst opinberlega í ljós. Þann dag var Kvisling settur í embætti sem forsætisráðherra Noregs, og hinn þýzklundaði alræðismaður Terboven hélt ræðu þar sem hann þóttist fletta ofan af pólitískum leynibrögð- um biskups, og þess hluta klerkastéttarinnar, sem fylgir honum að málum. Um leið voru þau lög gjörð heyrin kunn að öll börn og unglingar yfir tíu ára að aldri væru skyld að ganga í æskulýðshreyfingu ríkisins, hvort sem foreldrum þeirra félli betur eða ver. En þessi norska æskulýðsbreyf- ing er nákvæm stæling á samskonar hreyfingu með þýzkum nazistum. Þessu valdboði mótmælti Berggrev biskup kröft- uglega með bréfi 14. febrúar, og fjölmargir aðrir leiðtogar kirkjunnar. En það sem reið smiðshöggið í þessari baráttu mun þó hafa verið guðsþjónustan í Þrándheims dómkirkju fyr- nefndan sunnudag, 1. febrúar s.l. Dómkirkjuprestinum, Dr. Fjellbu var skipað að víkja frá við hámessu dagsins, til þess að gefa Blessing Dahl, gæðing Nazista, tækifæri til ao prédika. Þegar svo Dr. Fjellbu hóf guðsþjónustu sína eftir hádegið sama daginn kom lögreglan á vettvang, lokaði kirkjudyrunum, og skipaði fólkinu að fara heim. Einn af þeim, sem viðstaddir voru lýsir þessum einstæða viðburði í kirkjusögu Noregs á þessa leið: “Það var enginn múg- menskubragur á þessum kirkjugestum, svo þess þyrfti með að kalla á lögregluna. Þarna voru þúsundir kristinna manna og kvenna, þar á meðal flest allir prestarnir úr Þrándheimsbiskupsdæmi, og biðu eftir því að komast inn í kirkjuna og neyta þar heilagrar kvöldmáltíðar. Þetta var einkennileg og ógleymanleg stund. Við skulfum af kulda en gátum blátt áfram ekki hreyft okkur úr stað. Okkur fanst við verða að láta í Ijósi tilfinningar okkar á einhvern hátt. Alt í einu heyrðist rödd utan úr þrönginni, og allir tóku undir eins og sjálfkrafa: “Vor Guð er borg á bjargi traust.” Þarna stóðu þúsundir manna berhöfðaðir í kuld- anum, og sungu þennan fornfræga sálm Lúters, og aldrei hefir mér fundist hann voldugri og dýrlegri en einmitt þessa stund, er við stóðum umkringdir af einkennisbúnu og vopnuðu lögregluliði Kvislings. Þar næst var þjóðsöng- ur Norðmanna sunginn, og svo dreifðist mannþröngin um víða vegu.” Þegar saga þessa stríðs verður skráð hlýtur sjálfstæðis- barátta Norðmanna að verða þar ofarlega á blaði. En sú saga verður aldrei í letur færð án þess að sögð verði sagan

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.